Diskókúlur munu hanga úr byggingakrönum 15. ágúst 2015 12:00 Vel heppnað í fyrra Búist er við að karnivalið slái í gegn á Menningarnótt um næstu helgi.
Næstkomandi laugardag halda borgarbúar upp á Menningarnótt en Dj Margeir og Óli Ofur ætla að fara með hátíðarhöldin í nýjar hæðir. Í fyrra héldu þeir karnival á gatnamótum Klapparstígs og Hverfisgötu og þeir ætla að endurtaka leikinn í ár. Með aðstoð frá Nova ætla þeir með karnivalið í nýjar hæðir og leyfa gestum og gangandi að upplifa alvöru danspartí úti á miðri götu. Þeir fara óhefðbundnar leiðir þegar það kemur að uppsetningunni en þeir ætla meðal annars að hengja stærstu diskókúlu landsins upp í byggingarkrana sem er á svæðinu vegna hótelbyggingar. „Ég var að horfa út um gluggann hjá mér þegar mér datt þetta í hug. Ég sló á þráðinn til byggingarverktakanna og þetta var bara samþykkt og ákveðið í einu símtali. Eftir því sem ég kemst næst þá á Nova stærstu diskókúlu landsins en ef það er til önnur stærri þá notum við hana,“ segir Margeir. Þegar líða fer á daginn ætla þeir að nota það öflugan kastara á diskókúluna að það þurfti að láta flugumferðarstjórn vita af því. „Við erum komin með öll leyfi sem við þurfum og þetta verður bara algjör snilld.“ Í fyrra mættu mörg þúsund manns á karnivalið en það má búast við fleirum í ár þar sem það sló í gegn í fyrra. Dagskráin er pökkuð af flottum tónlistarmönnum ásamt því að það verður „pop-up“ jóga yfir daginn. Þeir skildu þó eftir eitt gat í dagskránni. „Mig langar að gefa einhverjum efnilegum plötusnúð tækifæri á að spila og auglýsi hér með eftir einhverjum sem hefur áhuga og langar að sýna hvað í sér býr.“ Það er öruggt að allir á svæðinu verði dansandi og enginn kemst upp með að standa og fylgjast með. „Það sem var svo gaman í fyrra var hvað allir voru að taka þátt og dönsuðu á fullu. Þetta var eins og dansmaraþon. Í ár erum við í samstarfi við Reykjavík Dance Festival og á einum tímapunkti munu þau koma fram og peppa alla upp.“ Karnivalið er engin venjuleg hátíð enda verður lagt gras á reitinn og byggt alvöru svið. „Þetta er ekki bíll sem keyrir inn á miðja götuna þar sem hliðarnar opnast og þá myndast svið. Við erum að virkja alla borgarbúa í að taka þátt í von um að þetta verði einhvers konar hverfishátíð. Svo hvetjum við líka aðra byggingarverktaka til þess að hengja diskókúlur í byggingakranana sína í tilefni Menningarnætur.“ Ég sló á þráðinn til byggingarverktakanna og þetta var bara samþykkt og ákveðið í einu símtali. Eftir því sem ég kemst næst þá á Nova stærstu diskókúlu landsins en ef það er til önnur stærri þá notum við hana.
Mest lesið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira