Rafmagnið færði ljós í bæinn og létti störfin Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 15. ágúst 2015 15:15 Unga fólkið er fljótt að tileinka sér tækni sýningarinnar og leita sér þekkingar um orkuna.
Rafmagnið færði fólki ljós og létti því störfin. Í dag er erfitt að hugsa sér lífið án rafmagns en hvenær kom þessi orkugjafi inn í líf okkar Íslendinga? Því er auðvelt að fletta upp á sýningu sem var opnuð í Ljósafossstöð í gær. Þar er það raforkan sjálf og áhrif hennar á samfélagið sem um er fjallað. Sýningin er meðal þess sem Landsvirkjun efnir til vegna fimmtíu ára afmælis á árinu. Með því að bregða upp sögum úr fortíðinni upplifa gestir sýningarinnar þróunina til dagsins í dag og hversu fljótt þessi orkugjafi var mikilvægur þáttur í daglegu lífi fólks. Sýningin er gagnvirk með áherslu á leik og upplifun, þar sem eðli og eiginleiki raforku birtist í margvíslegum myndum því sýningargestir eru leiddir inn í heim raforkunnar á nýjan og skapandi máta. Undirstöðuatriði rafmagnsfræðinnar eru útskýrð í gegnum einfaldar, skemmtilegar og fallegar tilraunir sem hafa leitt til mikilvægra skrefa í rafmagnssögunni. Ljósafossstöð var gangsett árið 1937 og stendur við útfall Úlfljótsvatns. Með tilkomu stöðvarinnar var framboð rafmagns fjórfaldað á höfuðborgarsvæðinu sem gerði íbúum kleift að nota rafmagnseldavélar í stað kolavéla. Þáttur í því að auka raforkunýtingu frá Ljósafossstöð var að bjóða íbúum höfuðborgarsvæðisins að fá eldavél frá Rafha í áskrift með rafmagninu. Sigurður Guðmundsson arkitekt teiknaði Ljósafossstöð í fúnkisstíl og hana prýðir verk eftir Ásmund Sveinsson myndhöggvara. Gagarín og Tvíhorf arkitektar eru hönnuðir sýningarinnar og fjöldi fyrirtækja og sérfræðinga kom að uppsetningunni.
Mest lesið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Sjá meira