Lét eftir sig litrík verk Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 8. ágúst 2015 10:30 Rúrí og Karl eru sammála um að Þormóður hafi verið blíður í eðli sínu en eftir árásina hafi það verið þrengri hópur en áður sem naut þess eiginleika hans. Vísir/Ernir „
Þormóður var nýútskrifaður sem listamaður þegar hann varð fyrir mjög alvarlegri líkamsárás í New York árið 1988. Sú árás var gerð beinlínis af því hann var hommi. Hann var í kóma í uppundir ár en vaknaði þá til meðvitundar þótt hann yrði aldrei samur maður og málaði ekki meira,“ segir myndlistarmaðurinn Rúrí sem ásamt kollega sínum, Karli Ómarssyni, er að leggja síðustu hönd á frágang yfirlitssýningar Þormóðs Karlssonar í Listasafni ASÍ þegar Fréttablaðsfólk ber að. Karl er náfrændi Þormóðs og stendur að sýningunni, ásamt fleiri nánum ættingjum. Rúrí kveðst bara vera handlangari. Karl heldur áfram að miðla sögu frænda síns. „Þormóður flutti frá Íslandi upp úr 1980 af því hann var samkynhneigður og leið ekki vel hér og líka til að læra myndlist. Hann fór til Kaupmannahafnar og tveimur árum síðar til San Francisco í nám. Þar leið honum vel og var ánægður með skólann. Á útskriftarsýningunni seldi hann verk til safnara í Bandaríkjunum og fór til New York til að afhenda þau. Þar varð hann fyrir ódæðisverkinu. Haft var eftir lögreglunni að markmið ofbeldismannsins hefði verið að drepa næsta homma sem kæmi út af vissu veitingahúsi og af tilviljun var það Þormóður.“ Rúrí tekur við aftur. „Saga Þormóðs er saga listamanns og líka saga manns sem á í þeirri sterku persónulegu baráttu sem það var að uppgötva sig samkynhneigðan meðan samfélagið hér á landi var ekki reiðubúið fyrir það. En hann var lengi að vinna að myndlist og þegar hann lauk námi var hann orðinn þroskaður listamaður. það sést á myndum hans, sérstaklega verkunum frá 1986 til 1988.“ Karl á lokaorðin. „Þormóður hafði mikið vit á myndlist og skipulagði sýningar á 22 þó hann hætti að mála sjálfur. Var að hjálpa öðrum myndlistarmönnum að sýna í fyrsta sinn. En hann átti erfitt líf síðustu árin. Systir hans sagði í minningarathöfn sem haldin var á 22 því þar sat hann oft eftir árásina: „Hann var myrtur í New York en það tók hann tíu ár að deyja. Þegar hann dó árið 2000 var fólk í raun að syrgja tvo menn. Enda var hann kaldhæðinn sjálfur og hélt upp á tvo afmælisdaga síðustu árin, fæðingardaginn og daginn sem hann kom úr kóma. Hann vissi sjálfur að hann væri ekki sami maður.“
Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira