Skemmta sér vel og fallega Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 1. ágúst 2015 10:30 Undirbúningur fyrir hátíðina var í fullum gangi þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði en á útisvæðinu verður fjölbreytt dagskrá um helgina. Vísir/Ernir
Tónlistarhátíðin Innipúkinn er haldin í fjórtánda sinn í ár, líkt og í fyrra verður sérstakt útisvæði þar sem margt verður um að vera, meðal annars fatamarkaður, ljóðalestur, Pub-Quiz, fjöldi matarvagna og plötusnúðar þeyta skífum. „Þetta var frábært í fyrra og þá var útisvæðapælingin tekin upp á hærra plan og við höldum því áfram. Það er auðvitað þversögn út af fyrir sig að vera með útisvæði á Innipúkanum. En það eru einhverjir sem bara geta ekki án grass verið og verða að finna lyktina af nýslegnu grasi yfir verslunarmannahelgina og við erum að þjónusta þennan hóp,“ segir Ásgeir Guðmundsson, einn af skipuleggjendum hátíðarinnar í ár, glaður í bragði. Fjöldi tónlistarmanna kemur fram um helgina, meðal annars Gísli Pálmi, Sturla Atlas og Steed Lord í kvöld og á morgun Sóley, Mammút og Teitur Magnússon auk fleiri. „Við erum mjög spenntir, þetta verður stórkostleg helgi. Innipúkinn stendur alltaf fyrir sínu og hefur verið í stöðugri uppbyggingu í fjórtán ár. Fólk skemmtir sér vel og fallega á Innipúkanum. Þetta er fullkomin afsökun til þess að segja nei við hræðilegum hugmyndum um að fara út á land í útilegu,“ segir Ásgeir og hlær. Annað kvöld verður hátíðinni lokað með balli. „Hljómsveitin Babies lokar helginni með Innipúkaballinu í ár og heldur stemningunni uppi langt fram á kvöld. Þau geta spilað endalaust, öll þessi helstu lög og það er engin leið að hreyfa sig ekki og brosa ekki þegar þau eru með ball,“ segir Ásgeir og bætir við að hljómsveitin hafi verið við stífar æfingar undanfarið og spili fullt af nýjum lögum. Ásgeir segir skipuleggjendur stilla miðaverði í hóf eins og hægt er. „Við erum með góða bakhjarla, Símann, Vífilfell og GoMobile sem aðstoða okkur. Við reynum að fá aðstoð og láta listamennina fá sem allra mest. Hagnaður hátíðarinnar splittast jafnt á öll böndin, alveg sama hvað þú ert stórt nafn. Það er ekkert annað en tónlistin í forgrunni.“ Nánari dagskrá er hægt að nálgast á Facebook-síðu Innipúkans og miða er hægt að kaupa á vefsíðunni Midi.is en hátíðarpassinn er á 6.990 krónur og miðið á stök kvöld á 3.990 en Innipúkinn verður haldinn á skemmtistöðunum Húrra og Gauknum við Tryggvagötu.
Mest lesið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni Anthony Head er látinn Lífið „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Lífið samstarf Fleiri fréttir Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Sjá meira