Hausinn fullur af hugmyndum Vera Einarsdóttir skrifar 4. ágúst 2015 10:30 Dreamkeeper eftir Guðmann Þór Bjargmundsson.
Höfuðverk er yfirskrift sýningar sem var opnuð í Anarkiu Listasal í Hamraborg um miðjan síðasta mánuð. Þar gefur að líta verk eftir tólf ólíka listamenn sem öll eru unnin úr hauskúpum hrúta. Jóhannes Óskar Sigurbjörnsson, bóndi á Þorgrímsstöðum á Vatnsnesi, stendur á bak við sýninguna en hann hefur um nokkurt skeið fengist við að hreinsa og vinna höfuðkúpur og bein hinna ýmsu dýra og skapa úr þeim listmuni undir merkinu Natural Bones Design.Jóhannes Óskar.Síðastliðið vor datt Jóhannesi Óskari í hug að fá til liðs við sig hóp listamanna og fékk hver um sig í hendur hauskúpu af hrút og var uppálagt að nota hana sem efnivið í listaverk. Útkoman er afar fjölbreytt. Afraksturinn er sýndur í Anarkiu, ásamt hreinum hauskúpum frá Jóhannesi Óskari. Jóhannes Óskar hafði gert talsvert af vegglistaverkum úr hauskúpunum en langaði að prófa að gera úr þeim fleiri muni. „Ég var með hausinn fullan af hugmyndum en komst bara ekki yfir að framkvæma þær allar. Þá datt mér í hug að fá fleiri til liðs við mig. Útkoman kom mér skemmtilega á óvart og þarna eru jafnt skúlptúrar sem nytja- og listmunir. Sjálfur var Jóhannes Óskar spenntur fyrir því að koma ljósi inn í kúpurnar og fékk eigendur fyrirtækisins Ljósberans Skermagerðar til að aðstoða sig við að búa til óvenjulegan lampa „Ég laumaði honum með á sýninguna undir dulnefninu Kropor Mazz, en þau hjá Ljósberanum voru sjálf með upplýsta, útskorna kúpu. En hvernig voru þátttakendurnir valdir? „Ég lagði upp með að vera bæði með þekkta og lítt þekkta listamenn. Þetta er ýmist fólk sem ég hafði samband við eða frétti af verkefninu og kom að máli við mig. Á opnuninni kom svo upp hugmynd um að gera þetta enn viðameira og er aldrei að vita nema af því verði,“ segir Jóhannes Óskar. Sýningin hefur að hans sögn fengið góðar viðtökur og mætti fjöldi fólks á opnunina. „Mér er sagt að það hafi verið mjög vel mætt miðað við árstíma og gaman að þetta skuli vekja athygli.“ Jóhannes Óskar hefur lengi haft brennandi áhuga á listum; jafnt tónlist, myndlist og nytjalist. „Ég bý yfir miklum sköpunarkrafti og finnst gaman að vinna með efnivið sem aðrir myndu flokka sem rusl.“ Jóhannes Óskar nálgast beinin aðallega í sláturhúsinu á Hvammstanga og þarf að vinna þau umtalsvert svo þau sómi sér vel á vegg eða sem annars konar heimilisprýði. „Það þarf að sjóða hausana og þrífa hornin vel til að fjarlægja alla fitu. Svo þarf að saga hornin til og koma þeim aftur á hausana.“ Jóhannes Óskar er hvergi nærri hættur og hefur verið að prófa sig áfram með refa-, fugla- og hvalabein svo dæmi séu nefnd. Aðspurður segir hann útlendinga sérstaklega áhugasama um kúpurnar og hefur fengið talsvert af pöntunum að utan. „Ætli okkur Íslendingum þyki þetta ekki meira hversdagslegt.“Joker eftir Kropor Mazz/Davíð Bjarnason.Sýningin í Anarkiu stendur til 16. ágúst en þar er opið alla daga nema mánudaga frá 15-18. Áhugasömum er jafnframt bent á Facebook-síðuna Natural Bones Design.
Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Lífið samstarf Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira