Býflugur á Sigló suða um svalir Gunnar Leó Pálsson skrifar 20. júlí 2015 10:00 Arnar Ómarsson ákvað að smíða svalir fyrir býflugurnar. Mynd/Daníel Starrason „
Við vorum nokkrir vinir að virða þetta fyrir okkur og þá kom upp þessi hugmynd um að smíða svalir fyrir þær,“ segir hinn 28 ára gamli listamaður, Arnar Ómarsson, sem hefur búið vel um býflugnabú á Siglufirði. Hann kom auga á býflugnabú sem staðsett var inni í steypuvegg í Alþýðuhúsinu á Siglufirði og ákvað að smíða svalir fyrir framan opið til að gleðja flugurnar flottu. „Ég veit ekki hversu stórt bú þetta er en það eru allavega einhverjar býflugur búnar að koma sér fyrir inni í steypuveggnum,“ segir Arnar.Hann hefur þó smíðað tvennar svalir fyrir flugurnar. „Fyrri svalirnar urðu fljótt úreltar þannig að ég bjó til nýjar og hafði þær töluvert flottari,“ útskýrir Arnar. Á nýju svölunum er að finna afþreyingu fyrir bústnar býflugurnar eins og sólstól og skilti en á skiltinu eru skilaboð frá Arnari. „Það stendur á skiltinu tilkynning um eftirlit og kveðja frá mér.“ Ætlarðu að bæta við öðru sniðugu á svalirnar? „Það gæti verið að maður bæti einhverju við og jafnvel stækki svalirnar. Maður þarf bara að komast að því hvað býflugum finnst skemmtilegt að gera,“ segir Arnar og skellihlær. Hann er ekki hræddur við býflugur. „Eru þær ekki meinlausar?“ Arnar er frá Akureyri en er staddur á Siglufirði við vinnu og nýtur þess að dást að flugunum í sínum frítíma. „Þetta er bara skemmtilegt og gaman að breyta aðeins til.“
Mest lesið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Lífið „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Lífið Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur Lífið Patrick Muldoon er látinn Bíó og sjónvarp Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Lífið Ari Edwald selur í Garðabænum Lífið Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Lífið samstarf „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Lífið Fleiri fréttir Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Sjá meira