Alltaf heillast af fólki og sögum Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 14. júlí 2015 11:00 Harpa Dís segir margt forvitnilegt leynast í bæjarfélaginu. Vísir/Valli
Harpa Dís Hákonardóttir hefur í sumar unnið að myndlistarseríunni Kópavogsbúinn sem hefur verið á faraldsfæti um bæjarfélagið í sumar. „Ég hef alltaf heillast af fólki og sögum og hef sjálf skrifað heilmikið. Hef skrifað tvær ævintýrabækur og af því að Kópavogur er sextíu ára í ár þá langaði mig að gera eitthvað úr því,“ segir Harpa Dís sem er fædd og uppalin í bæjarfélaginu. Verkin undirbjó hún með vettvangsferðum víðs vegar um bæinn, skissa og taka myndir af því sem fyrir augu bar. „Margir segja að það séu bara hús í Kópavogi og ekkert annað en þar leynist rosalega margt og það er gaman að geta skoða það.“ Harpa Dís segir myndlistaráhugann alltaf hafa blundað í sér en hún hafi fram til þessa ekki haft mikinn tíma til þess að sinna honum. Hún sló til eftir að hafa farið í lýðháskóla í Svíþjóð og mun í haust hefja nám í myndlist í listaskóla í Stokkhólmi. Harpa Dís gaf út tvær bækur þegar hún var 16 og 18 ára gömul, Galdrasteinninn og Fangana í trénu. Hún fékk inngöngu í Rithöfundasamband Íslands þegar hún var 19 ára gömul og er yngsti höfundur sem fengið hefur inngöngu í sambandið og er draumurinn að geta sameinað listgreinarnar tvær. „Mig langar svolítið að sameina þetta tvennt, það eru alveg heilmargir listamenn sem eru bæði myndlistarmenn og rithöfundar og ég vonast til þess að gera það í framtíðinni.“ Sýninguna er hægt að sjá í Smáralind en þar mun hún standa þar til á föstudag.
Mest lesið Messan sem var ekki tímamótaverk – en mig langaði samt til að gráta Gagnrýni Krimmi Elizu Reid á toppnum annan mánuðinn í röð Menning Það allra heitasta í sumarförðuninni Tíska og hönnun Aron segist hættur í ClubDub Lífið Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Lífið „Hann var ekkert eðlilega góður í sleik“ Makamál Hvar eru þau nú? Lífið Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Lífið Ekki bara tónleikar heldur alhliða þungarokkshátíð Lífið Orsakir flösu og áhrifarík meðferð Lífið samstarf Fleiri fréttir Ekki bara tónleikar heldur alhliða þungarokkshátíð Fjórum íslenskum útgáfum fagnað í tónlistarveislu í Iðnó Aron segist hættur í ClubDub Ragga nagli í hlutverk fjallkonu í Danmörku Dregur til baka hluta ásakana á hendur Baldoni Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Módernískur retró-stíll í hjarta miðborgarinnar Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Er með gervigreindarþjálfara Væbaramanía og múgæsingur er nýtt átak var kynnt Bergþór Másson selur slotið á ný Kaffibarinn til sölu í smækkaðri mynd Troðfylltu Laugardalshöll á umtöluðum tónleikum FM95Blö Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Stjörnulífið: Sumarlegar skvísur og stórtónleikar Hvar eru þau nú? Myndaveisla: Á bólakafi að skoða fiska á Sjómannadaginn Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Sirkushundur skemmtir ferðamönnum á Höfn í sumar Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Valerie Mahaffey er látin Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Kökuskreytingar og þjóðdansar á „Fjör í Flóa“ í dag Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Matti Matt nú meistari Sjá meira