Fékk afmælissönginn sunginn af Páli Óskari Gunnar Leó Pálsson skrifar 14. júlí 2015 11:00 Páll Óskar söng afmælissönginn fyrir Friðgeir á sveitaballi í Ýdölum ásamt um 500 gestum. „
Þetta var klárlega einn skemmtilegasti afmælisdagur sem ég hef upplifað. Það er ekki slæmt að fá Pál Óskar Hjálmtýsson til að syngja fyrir sig afmælissönginn ásamt 500 gestum á sveitaballi í Ýdölum,“ segir Friðgeir Bergsteinsson athafnamaður. Hann fagnaði á sunnudaginn þrjátíu ára afmæli sínu en þó svo að dagurinn hafi einkennst af talsverðri vinnu fékk hann afmælissönginn sunginn af þungavigtarmönnum í íslensku tónlistarlífi. „Palli söng fyrir mig eftir miðnætti aðfaranótt sunnudags og þegar ég kom í bæinn á sunnudaginn þá heyrði ég afmælissönginn í útvarpinu á Rás 2 frá Sniglabandinu sem var ansi skemmtilegt,“ segir Friðgeir léttur í lundu. Friðgeir hefur starfað sem aðstoðarmaður margra af helstu tónlistarmönnum þjóðarinnar frá árinu 2003 og því margar kanónurnar í tónlistarheiminum sem sendu honum heillaóskir.Hér eru tónlistarmennirnir Benedikt Brynleifsson og Hreimur Örn Heimisson með Friðgeiri. Þeir eru allir miklir félagar. Á afmælisdaginn fór afmælisdrengurinn einnig á leik með KR í Pepsi-deild karla, en hann er einn helsti aðdáandi liðsins og ákváðu KR-ingar að gefa honum afmælisgjöf. „KR vann leikinn 3–0 þannig að þeir gáfu mér eitt mark á hvern tug,“ segir Friðgeir og hlær. Hann ætlar að fagna þrítugsafmælinu næstkomandi fimmtudag og má búast við mörgum andlitum úr heimi tónlistarinnar og líka úr knattspyrnuheiminum, því hann er einnig mikilvægur meðlimur í Tólfunni, sem er stuðningsmannasveit íslenska landsliðsins í knattspyrnu og eins og fyrr segir einn helsti KR-ingur landsins. „Það ætla nokkrir snillingar að koma fram í veislunni eins og Hreimur Örn, Eyþór Ingi, Valdimar Guðmundsson, Erna Hrönn og margir fleiri. Ég hlakka mikið til að eiga frábæra stund með vinum og þeim sem standa mér næst, þó svo ég þurfi því miður að missa af KR-leik en ég hef ekki misst af KR-leik í ansi langan tíma,“ segir Friðgeir fullur tilhlökkunar. Friðgeir er mikill KR-ingur og kyssir hér bikar sem liðið vann.Friðgeir hefur unnið talsvert fyrir Magga Eiríks og Pálma Gunnars.
Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Lífið samstarf Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira