Tímamót að geta ferðast án mengunar Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 13. júlí 2015 14:30 Árni Sigurbjarnarson, eigandi Norðusiglingar.
Norðursigling á Húsavík tók fyrsta rafknúna hvalaskoðunarbátinn á Íslandi í notkun í gær. Báturinn er ekki einungis sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi heldur er hann fyrsti báturinn í heiminum sem hleður rafgeyma sína þegar siglt er undir seglum og notar síðan rafmagnið til að sigla áfram. Báturinn er því laus við notkun olíu. „Okkur finnst algjör tímamót í náttúruskoðun að geta skoðað náttúruna og ferðast án þess að menga og án þess að áreita náttúruna. Svo eykur þetta upplifun farþeganna, sem eru vanir að ferðast undir vélardrunum stórra skipa,“ segir Árni Sigurbjarnarson, eigandi Norðursiglingar. Öll skip Norðursiglingar eru eikarskip, átta talsins. Fjögur þeirra eru seglskip. Norðursigling er stofnuð utan um endurbyggingu gamalla íslenskra eikarskipa og miðar fyrirtækið að verndun umhverfisins. Auk skipanna er allur bílafloti fyrirtækisins rafrænn. Nýi búnaðurinn í skipinu nýtir bremsuafl í skrúfunni til að framleiða rafmagn með rafal inn á rafgeyma skipsins. Í skipinu eru fjórir rafgeymar sem hver vegur yfir sex hundruð kílógrömm. Öll tæknin er sérsmíðuð og sérhönnuð fyrir verkefnið í samstarfi við fyrirtæki á Norðurlöndunum og víðar í Evrópu. „Þetta verkefni hófst árið 2012. Á lokasprettinum höfum við verið að vinna með geysilega öflugum hópi. Nú þegar við erum byrjuð að prófa búnaðinn virðist hann uppfylla allar okkar væntingar og kannski gott betur en það,“ segir Árni. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra tók búnaðinn formlega í notkun í gær.
Mest lesið Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Lífið „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Lífið Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur Lífið Patrick Muldoon er látinn Bíó og sjónvarp Ari Edwald selur í Garðabænum Lífið Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Lífið samstarf Fleiri fréttir Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Sjá meira