„Skoðun“ blaðamanns Raphael Schutz skrifar 3. júlí 2015 00:00 Hér áður fyrr var evrópskum gyðingum gert það að sök að drepa börn kristinna í tengslum við helgisiði þeirra. Þeim var og gert það að sök að eitra vatnsbrunna í þeim tilgangi að koma af stað smitfaröldrum. Þá voru útbreidd hin alkunnu ósannindi að gyðingar þættust ráða heiminum í gegnum hina voldugu öldunga Zíons. Það er með ólíkindum hve lítið hefur breyst í gegnum aldirnar þegar kemur að gyðingum. Nú á dögum er þessi gamli rógburður ekki pólitískur rétttrúnaður lengur en hins vegar er það sjálfsagt að bera út viðurstyggilegan rógburð þegar kemur að gyðingum samtímans, þá sérstaklega í þjóðríki gyðinga, Ísrael.Gyðingar, Ísrael og blaðamennska Kjarninn í grein Óla Kristjáns, sem birtist í Fréttablaðinu 24. júní síðastliðinn, er hinn sex ára gamli Palestínuarabi Baider Qdeih, sem lést við landamærastöð. Það er sorgleg og hræðileg staðreynd sem býður upp á það að skoða þarf aðstæður og atburðarás af mikilli varfærni og án allra fordóma. Að segja frétt án samhengis eða bakgrunns er léleg fréttamennska og er jafn blekkjandi og röng frásögn. Í þessu tilfelli kýs blaðamaður að segja ekki lesendum frá þeirri staðreynd að palestínskir sjúkraflutningabílar eru þekktir fyrir að vera notaðir undir hryðjuverkastarfsemi s.s. vopnasmygl yfir til Ísraels og að ferja hryðjuverkamenn yfir landamærin þvert á öll lög um sjúkraflutninga. Ísraelsk yfirvöld verða að skoða hvern og einn sjúkraflutningabíl sem fer inn í Ísrael til að koma í veg fyrir frekari hryðjuverkaárásir á ísraelska borgara. Þessi ömurlegi atburður þar sem lítill drengur lét lífið er því miður fórnin sem er færð með háttalagi Palestínuaraba en það er auðvitað mun auðveldara að stinga hausnum í sandinn og kenna gyðingum um… ég meina Ísrael.Mannfall og fordæming Blaðamaður heldur áfram í greininni og segir „Tölfræðin talar þó sínu máli“ þegar kemur að mannfalli í Gasastríðinu síðasta sumar. Megnið af mannfalli Palestínuaraba voru hryðjuverkamenn eða yfir eitt þúsund slíkir. Blaðamaður lætur ógert að greina frá því. Tölurnar sýna einnig hvernig UNHRC (Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna) hefur snúið á hvolf hugmyndinni um mannréttindi í sínum andísraelska áróðri með blaðamenn eins og Óla Kristján um borð. Í þau níu ár sem þessi nefnd á vegum UNHRC hefur verið starfandi hefur hún fordæmt Ísrael oftar en öll heimsins lönd samanlagt eða 61 sinni! Á þessu sést bersýnilega að eitt land, Ísrael, er tekið út og því úthúðað á versta máta. Svona er þetta með UNHRC og fleiri stofnanir. Það sem kemur frá þeim, eins og þessi skýrsla, er ekki áreiðanlegt, heldur mjög hlutdrægt, en blaðamaðurinn hefur engar áhyggjur af því. Þegar hann segir „tölfræðin talar þó sínu máli“ vitnar hann í tölur yfir fórnarlömb, en þær tölur koma frá Palestínumönnum og öðrum hlutdrægum aðilum. Og það sem er enn mikilvægara er að hann talar bara um tölur, án þess að ræða samhengið. Höfðu nasistar á réttu að standa vegna þess að fleiri Þjóðverjar dóu í stríðinu en Bretar eða Bandaríkjamenn? Þetta er fáránlegt og það sem við sjáum hjá UNHRC er ekkert annað en farsi, orwellískt umhverfi, þar sem ráðist er á lýðræðisríki daginn inn og daginn út, aðallega af alræðisstjórnum, með hjálp frá gagnlegum fíflum á Vesturlöndum.Mannfórnir og málstaður Það er alltaf sorglegt þegar saklausir borgarar verða fórnarlömb stríðsátaka, ekki síst þegar um börn er að ræða. Almenn skynsemi ætti að segja okkur að sökin liggur hjá Hamas og öðrum hryðjuverkahópum, sem hafa það markmið að eyða Ísrael af landakortinu og nota sitt eigið fólk sem mannlega skildi. En í staðinn sjáum við sömu gömlu evrópsku aðferðina aftur – kennum gyðingnum um (fyrirgefðu, ég meinti Ísrael). Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar