Heimaþjónusta fyrir eldri borgara er framtíðin Fríða Hermannsdóttir skrifar 2. júlí 2015 07:00 Eins og flestum er kunnugt fjölgar ört í hópi eldri borgara og mikil þörf er á úrbótum í þjónustu fyrir þá. Í námi mínu í hjúkrunarfræði kviknaði áhugi hjá mér á því málefni og einlægur vilji til að bæta aðstæður og innleiða nýja hugmyndafræði í þjónustu fyrir þennan margmenna og fjölbreytta hóp.Neikvæð viðhorf Lengi hafa verið neikvæð viðhorf á einkavæðingu heilbrigðisþjónustu hérlendis, þá sérstaklega upp á síðkastið. Talað er um hneyksli vegna útboða og menn óttast að íslenska heilbrigðiskerfið verði með tímanum líkt og tíðkast í Bandaríkjunum. Einkavæðing á sér þó einnig stað í miklum mæli á Norðurlöndunum og hefur hún gengið nokkuð vel. Svíþjóð er í fyrsta sæti á „Global age watch index“ listanum sem mælir gæði heilbrigðisþjónustu í heiminum. Því er æskilegra að horfa til Norðurlandanna þegar kemur að einkavæðingu í stað þess að tengja orðið einkavæðingu á óréttmætan hátt við Bandaríkin og það tryggingakerfi sem er þar við lýði. Núverandi kerfi hérlendis mun ekki ganga upp til lengdar og því þurfum við að horfa á nýjar leiðir. Sú fullyrðing er ekki úr lausu lofti gripin, heldur byggð á reynslu annarra þjóða og áliti virtra opinberra stofnana eins og Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar sem hefur kallað eftir breytingum á þjónustu við þennan ört vaxandi hóp. Án einkavæðingar sér hið opinbera eingöngu um þjónustuna og þar með er ríkið að einoka markaðinn. Sé horft til Svíþjóðar þá hafa sveitarfélögin yfirumsjón með allri heimaþjónustu. Einkarekin fyrirtæki geta sótt um aðild og þurfa þá að standast ákveðin viðmið. Opinber matsaðili sér um að meta þarfir hvers og eins eldri borgara sem sækir um þjónustu og hversu mikla aðstoð viðkomandi á rétt á. Sveitarfélagið ákveður verðið og ber því skylda til að niðurgreiða heimaþjónustu til þeirra fyrirtækja sem standast viðmiðin. Slík leið er mun betri heldur en útboðsleiðin, þar sem velferð fólks er í húfi og slíka þjónustu ætti ekki að vera hægt að undirbjóða. Eldri borgarar ættu að geta valið sér þjónustuaðila sér að kostnaðarlausu. Þetta er sú leið sem ég vil að tekin verði upp hérlendis en með þessu móti er hægt að stuðla að jafnrétti og aukinni skilvirkni í heilbrigðisþjónustu. Eldri borgarinn fær nýtt hlutverk og sjálfstæði þar sem hann stjórnar ferðinni ásamt því að samkeppni myndast á milli þjónustuaðila sem allir vilja bjóða sitt besta og hafa ánægða viðskiptavini.Lausnin Mín sýn er sú að jafnrétti eigi að ríkja á milli allra þjóðfélagsþegna, jafnrétti á að eiga við um konur jafnt sem karla og þá á aldur og efnahagur ekki að vera áhrifaþáttur á gæði og aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Eldri borgarar eiga ekki að vera þurfalingar sem kerfið neyðist til að sinna heldur sjálfstæðir einstaklingar sem hafa réttindi og tækifæri til að velja hvað hentar þeim best. Flest getum við verið sammála um að núverandi kerfi býður því miður ekki upp á það. Þrátt fyrir að mæta áhugaleysi og oft á tíðum skilningsleysi (og hreinlega vanþekkingu) hins opinbera mun ég samt halda áfram að vinna að framþróun. Heimaþjónusta er framtíðin og flestir vilja eldast á eigin heimili. Með heimaþjónustu má efla sjálfstæði fólks og heilsu þess ásamt því að gera því kleift að búa lengur á eigin heimili. Það er kominn tími til að forgangsraða í fjárlögum ríkisins með heilbrigðiskerfið í forgangi, þar sem eldri borgarar hafa meira vægi í þjóðfélaginu. Mér er virkilega umhugað um málefni þeirra, flest okkar munu vonandi ná háum aldri en það er ekki nóg að lifa lengi heldur viljum við einnig lifa góðu lífi.fréttablaðið/gva Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 06.09.2025 Halldór Bakslag í skoðanafrelsi? Kári Allansson Skoðun Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson Skoðun Umfjöllun Kastljóss Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Getur þjóð orðið of rík? – Ádeila frá Noregi sem getur átt við um Ísland Júlíus Valsson Skoðun Útgerðin skuldar okkur skýringar Guðmundur Helgi Þórarinsson Skoðun Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius Skoðun Kyn og vægi líkamans Gunnar Snorri Árnason Skoðun Skólinn er ekki verksmiðja Kristinn Jón Ólafsson,Halldóra Mogensen Skoðun Austurland situr eftir þrátt fyrir fjórðung vöruútflutningstekna Berglind Harpa Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Getur þjóð orðið of rík? – Ádeila frá Noregi sem getur átt við um Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Fólk í sárum veldur tárum Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson skrifar Skoðun Akademískt frelsi og grátur í draumum Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar - tékklisti fyrir stjórnvöld til að gera betur Unnur Helga Óttarsdóttir,Anna Lára Steindal skrifar Skoðun Fjöldi kynja – treystir þú þér í samtalið með velferð barna að leiðarljósi? Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar Skoðun Ókeypis minnisblað fyrir Alþingi: Jafnrétti er ekki skoðun- en umræðan er það Sigríður Ásta Hauksdóttir skrifar Skoðun Segðu skilið við sektarkenndina Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius skrifar Skoðun Lög um vinnu og virknimiðstöðvar Atli Már Haraldsson skrifar Skoðun Áfram Breiðholt og Kjalarnes! Skúli Helgason skrifar Skoðun Austurland situr eftir þrátt fyrir fjórðung vöruútflutningstekna Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Vesturlönd mega ekki leyfa Pútín að skrifa leikreglurnar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Umfjöllun Kastljóss Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gulur september María Heimisdóttir skrifar Skoðun Kyn og vægi líkamans Gunnar Snorri Árnason skrifar Skoðun Sakborningur hjá saksóknara Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Reiði á tímum allsnægta Jökull Gíslason skrifar Skoðun 60.000 auðir fermetrar Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Kristinn átrúnaður á tímum þjóðarmorðs Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Tölur segja ekki alla söguna Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Skólinn er ekki verksmiðja Kristinn Jón Ólafsson,Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Enn úr sömu sveitinni Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Palestínsk börn eiga betra skilið Anna Lúðvíksdóttir,Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stjórn Eflingar lýsir yfir samstöðu með palestínsku þjóðinni og fordæmir þjóðarmorð á Gaza Hópur stjórnarmanna í Eflingu skrifar Skoðun Þjóð gegn þjóðarmorði – stéttarfélög hvetja til þátttöku Hópur formanna stéttarfélaga skrifar Skoðun Umferðaröryggi barna í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar er pabbi? Og aðrir stríðsglæpir Ísraels Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Skoðun Meira að segja Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson Skoðun
Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius Skoðun
Austurland situr eftir þrátt fyrir fjórðung vöruútflutningstekna Berglind Harpa Svavarsdóttir Skoðun
Skoðun Getur þjóð orðið of rík? – Ádeila frá Noregi sem getur átt við um Ísland Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson skrifar
Skoðun Skóli án aðgreiningar - tékklisti fyrir stjórnvöld til að gera betur Unnur Helga Óttarsdóttir,Anna Lára Steindal skrifar
Skoðun Fjöldi kynja – treystir þú þér í samtalið með velferð barna að leiðarljósi? Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar
Skoðun Ókeypis minnisblað fyrir Alþingi: Jafnrétti er ekki skoðun- en umræðan er það Sigríður Ásta Hauksdóttir skrifar
Skoðun Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius skrifar
Skoðun Austurland situr eftir þrátt fyrir fjórðung vöruútflutningstekna Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Stjórn Eflingar lýsir yfir samstöðu með palestínsku þjóðinni og fordæmir þjóðarmorð á Gaza Hópur stjórnarmanna í Eflingu skrifar
Skoðun Þjóð gegn þjóðarmorði – stéttarfélög hvetja til þátttöku Hópur formanna stéttarfélaga skrifar
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps reynir að skrá fólk út úr samfélaginu Guðrún M. Njálsdóttir,Ragna Ívarsdóttir,Þröstur Sverrisson Skoðun
Að útrýma menningu og þjóð Dagrún Ósk Jónsdóttir,Esther Ösp Valdimarsdóttir,Snædís Sunna Thorlacius Skoðun
Austurland situr eftir þrátt fyrir fjórðung vöruútflutningstekna Berglind Harpa Svavarsdóttir Skoðun