"Núll prósent“! Hjalti Þórisson skrifar 1. júlí 2015 07:00 Undarlegt málavafstur hefur staðið um verðtryggð lán nú um stundir. Því er haldið fram að lántakendur slíkra lána hafi ekki verið upplýstir um hvað felst í lántöku þeirra. Því er haldið fram, að við lánveitingar hafi ekki átt að „miða við núll prósent verðbólgu“, eins og það er orðað, við kynningu á greiðsluáætlun – það sé villandi og gefi ranga mynd. Um þetta er það að segja, að ekki er um verðlagsspá að ræða þegar greiðsluáætlun er reiknuð og sett fram, heldur er það einfaldlega reiknigrunnur lánanna, það nafnverð sem lánað er; þær krónutöluupphæðir sem umreiknast og verðbætur reiknast á á lánstímanum; – það er reiknigrunnur sem alltaf hlýtur að vera til staðar. Engin önnur aðferð er til og slíkt er ekki „röng upplýsingagjöf“ – þvert á móti. Slík greiðsluáætlun tilgreinir nákvæmlega heildarlántökukostnað verðtryggðra lána með föstum vöxtum á raunvirði, þ.e. núvirði. Það hlýtur því að vera einhver misskilningur á ferðinni varðandi „ráðgefandi álit“ Efta-dómstólsins ef skilja ber það þannig að miða eigi við einhverjar verðlagsviðmiðanir við gerð reiknigrunns lánanna. Verðtryggðir lánasamningar tiltaka grunnvísitölu, sem reiknigrunnurinn er bundinn við og greina frá því að nafnverðsupphæðir uppreiknist samkvæmt greiðsluvísitölu á hverjum tíma. Í þessum upplýsingum og tilvísunum í vísitölur er verðtryggingin fólgin og varnaður þar með gerður um að breytingar kunni að verða á krónutölu eftirstöðva, sem og við innheimtu á gjalddögum, miðað við gildandi greiðsluvísitölu. Það er því fjarri öllum sanni að miðað sé við núll prósent verðbólgu. Engu er um hana spáð, enda er það óábyrgt og ógerlegt, aðeins gert ráð fyrir verðlagsbreytingum – sem alkunna er til hækkunar og reyndar einnig lækkunar þegar svo ber undir). Ógerningur er að tilgreina endanlegar krónutölur og fjarstæðukennt að ætlast til þess. Eina rétta og gerlega aðferðin við að vinna greiðslumat er að gera það á nafnverði (– miðað við núll prósent verðbólgu, ef mönnum þóknast að orða það svo). Sú aðferð er verðtryggð í eðli sínu – hún er núvirt. Greiðslumatið miðast þá við tekjur (kaupgjald) á sama tíma – og lánveitingin við gildandi fasteignaverð ef um veðlán er að ræða. Þess er svo vænst, að svipuð þróun verði svo milli verðlags og kaupgjalds sem og fasteignaverðs, enda gengur það að jafnaði eftir. Það er sú áhætta sem felst í því að vera til. Engin leið er að finna vísari viðmiðun um raunvirði til framtíðar en að miða við einmitt það ástand sem er á þeim tíma sem lán eru tekin varðandi endurgreiðslur þess, greiðslubyrði og niðurgreiðslu raunvirðis eftirstöðva. Sömuleiðis þá um framtíðar-ráðstöfunartekjur, -greiðslugetu og eignaþróun. Fundið er að því, að ekki hafi verið stuðst við svokallaða „árlega hlutfallstölu kostnaðar“ að tilskipan EES og neytendalánalöggjafar.Mótsögn Um hlutfallstölu kostnaðar segir í lögum um neytendalán að hún eiga að „jafna núvirði“ eins og það er orðað. Úr því er ekki unnt að lesa annað en að kostnaður skuli núvirtur. Núvirði þýðir „fast verðlag“. Eigi að síður segir um verðtryggð lán, að kostnaður eigi að miðast við fyrirfarandi „ársverðbólgu“ (sem gera á ráð fyrir að gildi út lánstíma – sem getur verið 40 ár!). Þetta virðist hrein og bein mótsögn; þarna er ekki um núvirði að ræða. Allar hagstærðir eru miðaðar við fast verðlag þegar raunvirði þeirra er metið, svo er um þjóðhagsreikninga og eins þegar raunvextir eru metnir á svokölluðum „óverðtryggðum lánum“. Svo verður að ætla, að raunverulegt mat á „kostnaði“ hljóti einnig að miðast við fast verðlag; átt sé við „raunkostnað“, enda er það beinlínis tekið fram að um núvirðingu skuli vera að ræða, annað stenst enga skoðun. Hlutfallstala kostnaðar tekur sýnilega ekki tillit til verðrýrnunar gjaldmiðilsins og raunvirðis en „einblínir“ á krónutölur. Það er beinlínis rangt að skilyrða verðbólgu með þessu hætti fram í tímann, hvað þá um alla framtíð – og það þó ekki sé annað en að senda slík skilaboð. Aðeins er hægt að reikna slíkt eftir á, þegar verðbólga er komin fram eins og gert er þegar meta skal raunvexti á lánum með breytilegum vöxtum. Það er fullkomlega óábyrgt og út í bláinn að gera slíkt inn í framtíðina. Það stríðir gegn hugsuninni með verðtryggingum – sem ekki skilyrða kostnað framvirkt líkt og vextir gera – en leiðréttir fyrir verðgildisrýrnun eftir á. Verðbætur eru ekki hugsaðar sem viðbótarverð né aukakostnaður, aðeins leiðrétting á verðmæti – verðmætisbinding. Sé hlutfallstala kostnaðar núvirt gefur hún nánast sömu niðurstöðu og vaxtaprósentan á lánum með fasta vexti og bætir naumast neinum upplýsingum við kostnaðarmatið. Hvað varðar lán með breytilegum vöxtum er hlutfallstalan hins vegar verulega óáreiðanleg viðmiðun um greiðslubyrði, þar sem miða skal við gildandi vexti þá og þá stundina sem lán er veitt. Hún veitir því enga vísbendingu um hina sveiflukenndu greiðslubyrði þeirra, sem getur flökt óheyrilega. Ætla verður að ekki sé gerð síðri krafa um fyrirsjáanleika á slíkum lánum en hinum verðtryggðu. Lánveitendur geta aðeins kynnt lántakendum hvernig verðlag hefur þróast og við hverju megi búast – en þá jafnframt um það sem á móti kemur – hvernig aðrar viðkomandi hagstærðir hafa þróast – þróun á krónutölum tekna og eigna. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Skoðun Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Stefán Ernir Valmundarson skrifar Skoðun Orkuskiptin sem engu máli skiptu Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Samtöl við þá sem hurfu of fljótt Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Flugvöllurinn í Reykjavík - fyrir landið allt Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar
Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller Skoðun