Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 27. júní 2015 12:00 Þetta verður í fyrsta skiptið sem James spilar á Íslandi en hann mun koma fram ásamt dóttur sinni. Mynd/aðsend
Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir Alþjóðlegu orgelsumri. Félagið flytur þá inn orgelleikara um hverja helgi og mun gera það fram til 9. ágúst. Sumar helstu stjörnurnar á himni orgelleiks munu koma til landsins og einn af þeim er James D. Hicks sem leikur nú um helgina. Hann er Bandaríkjamaður en leikur mest norræn verk og býr í Noregi. Hicks mun frumflytja nýtt verk eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Á tónleikunum mun hann njóta liðsinnis dóttur sinnar, Virginiu Hicks sópransöngkonu. Saman munu þau flytja verk eftir Hicks sjálfan auk annarra verka, norrænna og bandarískra. Nýjasta verk Hildigunnar Rúnarsdóttur sem frumflutt verður um helgina ber nafnið Fantasía um Ísland, farsælda frón. Á sömu tónleikum má einnig heyra Sálmaforleik um Lofið Guð eftir Þorkel Sigurbjörnsson og verk eftir Karlsen, Sundberg, Mikkelsen og Sixten, auk verka eftir Hicks sjálfan og J.K. Paine. Inga Rós Ingólfsdóttir, framkvæmdastjóri Listvinafélagsins, stendur að skipulagningu tónleikanna. „James er vel þekktur úti í heimi og við erum því gífurlega spennt að fá hann. Þetta er í fyrsta skipti sem hann kemur til landsins sem er merkilegt þar sem hann spilar mikið af norrænum verkefnum og sum þeirra eru íslensk,“ segir Inga. James D. Hicks er fæddur í Bandaríkjunum og hlaut þar menntun og starfsframa, en hann starfaði m.a. í 26 ár við Biskupakirkjuna í Morristown í New Jersey. Á síðustu árum hefur áhugi hans beinst að Norðurlöndum þar sem hann hefur dvalið við upptökur og tónleikahald. Hann hefur tekið upp nokkra orgelgeisladiska sem innihalda að mestu leyti norræn verk. Í sumar munu íslenskir orgelleikarar einnig spila í Hallgrímskirkju öll fimmtudagshádegi. Fyrri tónleikar Hicks eru í dag, laugardaginn 27. júní, kl. 12 á hádegi og er miðaverð 2.000 kr. Síðari tónleikarnir verða á morgun, sunnudaginn 28. júní, kl. 17 og miðaverð er 2.500 kr.- gj
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Sjá meira