Lífið

Breaking Bad-stjarna sýnir föt

Gunnhildur Jónsdóttir skrifar
Hér má sjá Breaking Bad hópinn.
Hér má sjá Breaking Bad hópinn. Vísir/Getty
Leikarinn RJ Mitte, sem flestir þekkja sem Walter jr., kom fram á sinni fyrstu tískusýningu í Mílanó á dögunum.

Leikarinn ungi, sem er á skrá hjá Elite Model-skrifstofunni, lokaði sýningu Vivienne Westwood með pompi og prakt.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Westwood ræður óhefðbundin módel til þess að sýna fyrir sig á tískusýningum, en stjarnan úr Game of Thrones, Gwendoline Christie, sýndi fyrir hana í mars á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×