Hreppti hönnunarverðlaunin Guðrún Ansnes skrifar 18. júní 2015 10:30 Brynjar tók á móti verðlaununum á þriðjudagskvöldið og er hæstánægður með heiðurinn. Mynd/NiciJost
Brynjar Sigurðarson hlaut svissnesku hönnunarverðlaunin, Swiss Design Awards, í flokki vöru- og hlutahönnunar á þriðjudagskvöldið og varð þar með fyrsti Íslendingurinn til að hljóta þau virtu verðlaun. „Ég er ennþá að taka þetta allt saman inn, þetta er rosalega mikill heiður,“ segir Brynjar nokkuð hrærður, þó hann hafi fengið upplýsingar um heiðurinn nokkrum dögum áður. „Ég mátti ekki segja neinum frá þessu fyrr en á mánudaginn, á sjálfan afmælisdaginn minn, svo þetta var mjög skemmtilegt.“ Verðlaunin eru mjög virt í Sviss en Brynjar skaut fjölmörgum ungum og hæfileikaríkum hönnuðum ref fyrir rass, en alls þrír voru verðlaunaðir í flokki Brynjars. Auk heiðursins hlýtur Brynjar peningaverðlaun sem koma sér gríðarlega vel að hans sögn. „Mig langar að fara að framleiða hluti sjálfur, en ekki í slagtogi við fyrirtæki. Það er töluvert hark svo þessi verðlaun koma sér afar vel.“ Líkt og Fréttablaðið hefur sagt frá er Brynjar á leið til Íslands í lok mánaðar þar sem hann mun í slagtogi við kærustu sína og Frosta Gnarr, vinna að verkefninu Góðir vinir. „Nú verður maður bara að halda sér niðri á jörðinni og halda áfram,“segir Brynjar að lokum.
Mest lesið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Tónlist Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Bieber gefur út óvænta plötu Lífið Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð Tíska og hönnun Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Lífið Borgin býður í tívolíveislu Tónlist Ragga Holm og Elma trúlofaðar Lífið Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Áskorun Fleiri fréttir Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Sjá meira