Færa fjörið aftur heim í hverfið Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 13. júní 2015 10:30 Hátíðin mun meðal annars fara fram í höggmyndagarði Hallsteins Sigurðssonar myndhöggvara. Hér er hluti Breiðhyltinga sem koma að hátíðinni. vísir/stefán
Hugmyndin var að færa listamenn úr Breiðholti aftur heim í Breiðholtið,“ segir Valgeir Sigurðsson, einn skipuleggjenda Breiðholt festivals. „Okkur langaði líka að lífga upp á hverfið og þar sem það koma margir listamenn og framkvæmdafólk af þessu svæði er gaman að hóa í alla aftur. Sjón verður þeirra á meðal en hann var hluti af Medúsahópnum sem spratt upp úr Breiðholtinu þegar hverfið var að byggjast upp.“ Valgeir segir lítið af uppákomum í hverfinu og að hugmyndin hafi komið þegar hann var í göngutúr í dalnum þar sem festivalið er haldið, það er á grónu svæði í hjarta Seljahverfisins í námunda við gamla bæjarstæði Breiðholts sem hverfið dregur nafn sitt af. „Þetta er tilvalið til að sjá framan í nágrannana og setja jákvæðan fókus á Breiðholtið en það er ekki endilega í allra hugum spennandi heim að sækja. Við viljum leiðrétta þann misskilning.“ Valgeir og listamenn sem koma fram á hátíðinni hafa staðið fyrir fullt af tónleikum og uppákomum í miðbæ Reykjavíkur. „Við höfum alltaf verið að dröslast niður í bæ þannig að þetta er viðleitni til að gera þetta heima í héraði.“ Á hátíðinni verður sem fyrr segir dagskrá með Breiðhyltingum, einnig verður dans- og tónlistarsmiðja í boði og markaður með sölubásum. Hátíðin endar með tónleikum þar sem Ben Frost, Kira Kira og Samaris koma meðal annars fram.
Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Lífið Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig Lífið Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Tónlist Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Fleiri fréttir Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum Sjá meira