Skoda verður ekki startað Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. júní 2015 07:00 Tékkarnir eru á því að Tomás Necid byrji leikinn. Fréttablaðið/AFP
Tékkar urðu fyrir áfalli um síðustu helgi þegar aðalframherji liðsins, David Lafata, meiddist á æfingu landsliðsins, en hann verður ekki með í stórleiknum í Laugardalnum í kvöld. Lafata er leikmaður Sparta Prag í tékknesku deildinni þar sem hann lauk keppni sem markahæsti maður deildarinnar. Hann skoraði 20 mörk og er einn fyrsti maður á skýrslu. Góð ráð eru dýr fyrir Tékka sem hafa ekki úr mörgum úrvalsframherjum að velja. Til greina koma þeir Tomas Necid, leikmaður Zwolle í Hollandi, og Milan Skoda, 29 ára gamall nýliði sem leikur með Slavia Prag. Tékkneskir blaðamenn tippa á að Vrba þjálfari velji Necid fram yfir Skoda sem var næstmarkahæstur í tékknesku deildinni á síðustu leiktíð. Er haldið að 30 leikja reynsla Necids með landsliðinu skipti sköpum þar sem Skoda hefur ekki enn spilað landsleik. Hjá íslenska liðinu stendur valið hjá Lars og Heimi á milli Jóns Daða Böðvarssonar og Eiðs Smára í framlínuna. Jón Daði byrjaði fyrstu fjóra leikina en Eiður kom sterkur inn gegn Kasakstan og skoraði. Hann hefur þó ekki spilað leik í 41 dag en Jón Daði er á fullu með Viking. Annað verður líklega óbreytt.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Bayern München - Arsenal | Englandsmeistararnir heimsækja þýska stórliðið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Sjá meira