Einkatónleikarnir eru orðnir þrennir talsins Gunnar Leó Pálsson skrifar 4. júní 2015 08:00 Hljómsveitin Grísalappalísa hefur löngum verið talin ein líflegasta tónleikasveit landsins.
Hljómsveitin Grísalappalísa hefur undanfarnar vikur staðið fyrir söfnun fyrir vínylútgáfu á breiðskífunum sínum tveimur Ali og Rökrétt framhald á vefsíðunni Karolinafund. Þeir sem leggja sveitinni lið með fjárframlögum geta meðal annars keypt einkatónleika með sveitinni. „Það hafa þrír aðilar keypt einkatónleika. Þetta leggst frábærlega í mig. Þetta verður allt í garðveislum á höfuðborgarsvæðinu og allt í ágúst. Þetta verður ágætis túr,“ segir Gunnar Ragnarsson, söngvari hljómsveitarinnar Verð fyrir einkatónleikana eru 500 evrur eða um 77 þúsund krónur, sveitin setti þó hámark á einkatónleika og getur heildarfjöldi tónleika aðeins verið fimm. „Þetta er náttúrulega gjafverð fyrir sjö manna rokkmaskínu. Það eru tveir aðilar sem geta enn náð okkur. Garðveislutúrinn í ágúst kemur í staðinn fyrir hringinn eins og síðasta sumar.“ Auk platnanna tveggja ætlar sveitin einnig að gefa út tvöfalda tónleikaplötu á vínyl.Hljómsveitin Grísalappalísa og Megas að trylla lýðinn.Söfnunin hefur gengið vel og er meðlimir sveitarinnar ákaflega þakklátir. „Þetta hefur gengið mjög vel, erum búnir að safna 104 prósentum af því sem við ætluðum okkar, sem er rúm milljón.“ Í söfnuninni getur fólk einnig keypt koverlag, eða valið sér lag sem sveitin tekur upp fyrir kaupandann. Ragnar, faðir Gunnars, hefur keypt koverlag. „Tveir aðilar hafa keypt koverlag og pabbi er annar þeirra. Ég er bæði hræddur og spenntur yfir því að að sjá hvað hann hefur valið. Hann er allavega mikill Shakiru-aðdáandi. Við bíðum spenntir eftir því verkefni að taka koverlögin, enda búnir að gefa út tvær koverlagasjötommur „Grísalappalísa syngur“ bæði Megas og Stuðmenn.“ Grísalappalísa verður á ferð og flugi í sumar og kemur meðal annars fram á ATP Iceland, Lunga og Eistnaflugi ásamt því að standa að ýmsu tónleikahaldi sjálfir.
Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Fleiri fréttir Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Sjá meira