Fólk og forgangsröðun Páll Valur Björnsson skrifar 2. júní 2015 06:00 Í vetur greindu fjölmiðlar frá því að nokkrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar væru að fá nýja bíla. Það er gott til þess að vita að við skulum vera nægilega rík í þessu landi til að í ríkissjóði finnist peningar sem duga fyrir góðum bílum fyrir ráðherrana okkar en samkvæmt fjölmiðlum kosta bílarnir á bilinu tíu til tuttugu milljónir kr. hver. Enginn heilvita maður efast um mikilvægi þess að ráðherrarnir séu vel akandi til að þeir geti sinnt sínum krefjandi störfum fyrir hönd og í þágu þjóðarinnar og geti tekið virkan þátt í samfélaginu. Og ekki viljum við hafa þá á einhverjum skrjóðum því að þá gæti þeirra dýrmæti tími farið allt of mikið í að ýta í gang, skipta um dekk og bæta á leka vatnskassa. Það er hins vegar mjög leitt til þess að vita að við skulum samt vera svo fátæk í þessu landi að það skuli ekki vera til peningar í ríkissjóðnum okkar til að reka félagslega túlkasjóðinn allt árið. Það þýðir aðeins eitt. Heyrnarskert fólk sem er háð þjónustu sjóðsins fer á mis við tækifæri til að taka virkan þátt í samfélaginu og vera með okkur í leik og starfi. Þetta gengur fullkomlega gegn þeim grundvallarsjónamiðum sem samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks byggjast á og samningurinn hefur að meginmarkmiði, þ.e.a.s. „að fatlaðir geti tekið fullan og virkan þátt í samfélaginu án aðgreiningar“, eins og þar segir. Hér er því alls ekki um ölmusu eða góðverk eða lúxus ræða. Þetta snýst um grundvallarmannréttindi fólks til að vera ekki útilokað frá þátttöku í samfélaginu. Og þó að ég telji æskilegt að ráðherrar okkar séu á vel gangfærum bílum en ekki á einhverjum bilanagjörnum skrjóðum ætla ég þó að gerast svo djarfur að fullyrða það hér að réttur þeirra til þess sé ekki tryggður í alþjóðlegum mannréttindasamningum. Ég vil því hvetja hæstvirtan mennta- og menningarmálaráðherra til að lesa nú samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks vel yfir og taka þær skyldur sem þar eru á hann lagðar alvarlega. Ég hvet hann einnig til að kíkja svo í ríkiskassann okkar og sjá hvort hann getur ekki fundið þar svolitla peninga til að reka megi félagslega túlkasjóðinn þannig að sómi sé að og þannig að ekki verði brotin mannréttindi á fólki í okkar nafni. Ef hæstvirtum ráðherra tækist þetta er ég viss um að hann myndi gleðja mikið allan almenning í þessu landi sem hann vinnur fyrir og sem á peningana sem geymdir eru í ríkiskassanum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Verri framkoma en hjá Trump Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ísrael – brostnir draumar og lygar Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir Skoðun GPT‑5 kemur í ágúst – áskoranir og tækifæri fyrir Ísland Sigvaldi Einarsson Skoðun Við tölum um vöxt — en gleymum því sem vex Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Ætla þau að halda áfram að grafa sína eigin gröf? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þú ert búin að eyðileggja líf mitt!!! Sandra Ósk Jóhannsdóttir Skoðun Landið talar Davíð Arnar Oddgeirsson Skoðun Þegar hið smáa verður risastórt Sigurjón Þórðarson Skoðun Halldór 26.07.2025 Halldór Skoðun Skoðun Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun GPT‑5 kemur í ágúst – áskoranir og tækifæri fyrir Ísland Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Við tölum um vöxt — en gleymum því sem vex Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Verri framkoma en hjá Trump Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Landið talar Davíð Arnar Oddgeirsson skrifar Skoðun Ætla þau að halda áfram að grafa sína eigin gröf? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Ísrael – brostnir draumar og lygar Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Ein af hverjum fjórum Silja Höllu Egilsdóttir skrifar Skoðun Vertu drusla! Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Þegar hið smáa verður risastórt Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Þú ert búin að eyðileggja líf mitt!!! Sandra Ósk Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Tekur sér stöðu með Evrópusambandinu Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Feluleikur ríkisstjórnarinnar? Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun Ég heiti Elísa og ég er Drusla Elísa Rún Svansdóttir skrifar Skoðun Grindavík má enn bíða Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Aðventukerti og aðgangshindranir Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Lífið í tjaldi á Gaza Viðar Hreinsson,Israa Saed skrifar Skoðun Gaza og sjálfbærni mennskunnar Elva Rakel Jónsdóttir skrifar Skoðun Börnin og hungursneyðin í Gaza Sverrir Ólafsson skrifar Skoðun Kynbundið ofbeldi Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Aðdragandi aðildar þarf umboð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson skrifar Skoðun Þétting byggðar er ekki vandamálið Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Þrengt að þjóðarleikvanginum Þorvaldur Örlygsson skrifar Skoðun Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir skrifar Skoðun Sameiginleg yfirlýsing 28 ríkja um málefni Palestínu, hvers virði er hún? Einar Ólafsson skrifar Skoðun Alltof mörg sveitarfélög á Íslandi! Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Öryggi betur tryggt – fangelsismál færð til nútímans Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Lýðheilsan að veði? Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Evrópusambandsaðild - valdefling íslensks almennings Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Sjá meira
Í vetur greindu fjölmiðlar frá því að nokkrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar væru að fá nýja bíla. Það er gott til þess að vita að við skulum vera nægilega rík í þessu landi til að í ríkissjóði finnist peningar sem duga fyrir góðum bílum fyrir ráðherrana okkar en samkvæmt fjölmiðlum kosta bílarnir á bilinu tíu til tuttugu milljónir kr. hver. Enginn heilvita maður efast um mikilvægi þess að ráðherrarnir séu vel akandi til að þeir geti sinnt sínum krefjandi störfum fyrir hönd og í þágu þjóðarinnar og geti tekið virkan þátt í samfélaginu. Og ekki viljum við hafa þá á einhverjum skrjóðum því að þá gæti þeirra dýrmæti tími farið allt of mikið í að ýta í gang, skipta um dekk og bæta á leka vatnskassa. Það er hins vegar mjög leitt til þess að vita að við skulum samt vera svo fátæk í þessu landi að það skuli ekki vera til peningar í ríkissjóðnum okkar til að reka félagslega túlkasjóðinn allt árið. Það þýðir aðeins eitt. Heyrnarskert fólk sem er háð þjónustu sjóðsins fer á mis við tækifæri til að taka virkan þátt í samfélaginu og vera með okkur í leik og starfi. Þetta gengur fullkomlega gegn þeim grundvallarsjónamiðum sem samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks byggjast á og samningurinn hefur að meginmarkmiði, þ.e.a.s. „að fatlaðir geti tekið fullan og virkan þátt í samfélaginu án aðgreiningar“, eins og þar segir. Hér er því alls ekki um ölmusu eða góðverk eða lúxus ræða. Þetta snýst um grundvallarmannréttindi fólks til að vera ekki útilokað frá þátttöku í samfélaginu. Og þó að ég telji æskilegt að ráðherrar okkar séu á vel gangfærum bílum en ekki á einhverjum bilanagjörnum skrjóðum ætla ég þó að gerast svo djarfur að fullyrða það hér að réttur þeirra til þess sé ekki tryggður í alþjóðlegum mannréttindasamningum. Ég vil því hvetja hæstvirtan mennta- og menningarmálaráðherra til að lesa nú samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks vel yfir og taka þær skyldur sem þar eru á hann lagðar alvarlega. Ég hvet hann einnig til að kíkja svo í ríkiskassann okkar og sjá hvort hann getur ekki fundið þar svolitla peninga til að reka megi félagslega túlkasjóðinn þannig að sómi sé að og þannig að ekki verði brotin mannréttindi á fólki í okkar nafni. Ef hæstvirtum ráðherra tækist þetta er ég viss um að hann myndi gleðja mikið allan almenning í þessu landi sem hann vinnur fyrir og sem á peningana sem geymdir eru í ríkiskassanum.
Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun
Skoðun Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar
Skoðun Yfirlýsing frá Kára Stefánssyni um hrakfarir hans í samskiptum við íhaldssaman blaðamann Kári Stefánsson skrifar
Skoðun Ert þú drusla? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir,Elísa Rún Svansdóttir,Lilja Íris Long Birnudóttir,Lísa Margrét Gunnarsdóttir,Margrét Baldursdóttir,Silja Höllu Egilsdóttir skrifar
Skoðun Sameiginleg yfirlýsing 28 ríkja um málefni Palestínu, hvers virði er hún? Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Öryggi betur tryggt – fangelsismál færð til nútímans Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar
Truman-ríkið: Tilraunir raunheimsins að komast í gegnum gervihvelfinguna Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun