Egill ætlar að sigla um heimsins höf Gunnar Leó Pálsson skrifar 1. júní 2015 08:00 Egill Ólafsson er hér um borð í sinni glæsilegu skútu en hún var smíðuð árið 1939. Hann ætlar jafnvel að sigla til Sýrlands að sumri, enda æfir hann nú á fullu fyrir tónleika tileinkaða plötunni Sumar á Sýrlandi.
Stórsöngvarann Egil Ólafsson hefur lengi dreymt um að sigla um heimsins höf og nú sér hann fram á að sá draumur geti ræst. „Ég hef augastað á gamalli eikarskútu frá fyrri hluta síðustu aldar. Upphaflega var hún smíðuð til veiða, en einhvern tíma á langri sögu hefur henni verið breytt í skemmtiskútu og nú er hún í slipp á Jótlandi þar sem skelin og innviðir eru kannaðir. Ef allt gengur eftir verður lagt úr höfn með sumrinu og hver veit nema stefnan verði tekin á Sýrland í ókominni framtíð,“ Segir Egill kampakátur. Hann tók svokallað pungapróf eða smáskipanám fyrir um fimmtán árum en hefur þó hingað til lítið látið reyna á skipstjórnarhæfileikana. „Það á eftir að reyna á kemíuna fyrir alvöru, ég er að vísu búinn að sigla skútunni nokkrar dagleiðir, en það var meira til að koma henni á milli staða. Það er allt annað að leggja á hafið og láta vind og auðnu ráða var næst verður komið til hafnar. Það er nauðsynlegt að sigla “ bætir Egill við léttur í lundu. Egill er af sjómönnum kominn og á meðal annars ættir að rekja í Landeyjarnar. „Forfeður mínir voru sjómenn og útvegsbændur. Afi var skipstjóri og pabbi var á sjó og sjálfur var ég kominn um borð í báta þegar ég var bara tveggja eða þriggja ára“ segir Egill spurður út í sjómennskuna. „Mér líður vel á sjó, ætli blóðið segi ekki til sín. Því meiri vindur, því meiri byr seglin.“ En á Egill einhvern óskafélaga til að sigla með um heimsins höf? „Ég fagna hverjum þeim sem nennir að vera með mér. Auðvitað vil ég helst að konan mín komi með og það eru allar líkur á að það gangi eftir,“ segir Egill kíminn. „Hún er mjög sjóhraust og hefur tekið þessum draumi mínum fagnandi og gert hann að sínum. Hún hefur að vísu verið að tala meira um það í gegnum tíðina að eignast athvarf við sjó, sumarbústað eða þess háttar, meðan ég hef verið að tala um bát og það að sigla á sjónum. Nú erum við í raun að sameina þessa drauma okkar. Skútan verður okkar athvarf, ekki við sjó, heldur á sjó, þar sem útsýnið er síbreytilegt og nýtt.“ Þessa dagana er Egill ásamt hljómsveit sinni Stuðmönnum að æfa af kappi fyrir tónleika sem fram fara um næstu helgi í Hörpu. Tónleikarnir eru tileinkaðir plötunni Sumar á Sýrlandi og mun fríður flokkur hljóðfæraleikara og söngvara sameinast á sviðinu með Stuðmönnum nk. föstudag og laugardag.
Mest lesið Varð að vera flottastur í eigin teiti Tíska og hönnun Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Menning Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Lífið „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Lífið Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Sjá meira