Stúdentspróf – fjölbreytni í fyrirrúmi Lárus H. Bjarnason skrifar 28. maí 2015 07:00 Í samræmi við stefnu menntamálayfirvalda hafa velflestir framhaldsskólar endurskipulagt námsbrautir með það fyrir augum að innrita nemendur á þriggja ára stúdentsbrautir þegar í haust. Í þremur menntaskólanna, þ.e. MA, MH og MR, er þó farið hægar í sakirnar og boðið upp á fjögurra ára stúdentspróf enn um sinn. Stúdentspróf á þremur árum er reyndar engin nýlunda í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Allt frá árinu 1974 hefur nokkur hópur stúdenta brautskráðst árlega eftir þriggja ára nám og frá aldamótum hefur skólinn boðið þriggja ára nám til alþjóðlegs stúdentsprófs. Þessu til viðbótar verður í haust boðið upp á nýja þriggja ára braut samhliða lengri brautunum, sérstaka hraðferðarútgáfu af opinni braut með einkar sveigjanlegu skipulagi.Sveigjanleiki áfangakerfis Möguleikinn á að ljúka hefðbundnu stúdentsprófi á þremur árum í MH helst í hendur við áfangakerfið en með innleiðingu þess gafst dugmiklum nemendum kostur á að þjappa náminu á styttri tíma þótt námseiningar þriggja ára stúdentanna væri engu færri en hinna. Einn meginkostur áfangakerfisins er einmitt sveigjanleikinn sem nemendur njóta við skipulag námsins. Þrátt fyrir langvarandi fjárþröng framhaldsskólanna hefur lánast, einkum í krafti stærðarinnar, að viðhalda og jafnvel auka fjölbreytni og möguleika til einstaklingsbundins náms í MH. Eitt helsta leiðarljós skólans er að virða ólíkar þarfir einstaklinga og ganga út frá vilja nemenda til að axla ábyrgð. Áhersla hefur verið lögð á fjölbreytni og kappkostað að kynna nemendum vinnubrögð sem tíðkast í háskólanámi. Algengt er að nemendur taki töluvert af einingum umfram áskilið lágmark, ýmist til þess að kynnast sem flestum námsgreinum eða til þess að dýpka undirbúning í völdum greinum með tilliti til áforma í háskólanámi. Meðal nýbreytni síðustu ára í MH er svokölluð opin braut til stúdentsprófs og er nemandi á henni óbundinn af áherslum sem birtast í algengum brautaheitum á borð við félagsfræðabraut, málabraut og náttúrufræðibraut. Nemandi á opinni braut velur sér þrjár til fjórar kjörgreinar og leggur sérstaka áherslu á nám í þeim. Krafan er að ákveðinni dýpt sé náð með keðju áfanga í kjörgreinunum en ekki er þörf á að þær séu innbyrðis tengdar. Til dæmis gætu kjörgreinar eins nemanda verið stærðfræði, eðlisfræði, saga og spænska, annar gæti verið með íslensku, sálfræði heimspeki og leiklist og sá þriðji með tónlist, ensku og líffræði. Svo vill til að á þessu vori brautskrást fyrstu stúdentar opnu brautarinnar og þar sýnir sig einmitt að samsetning kjörgreina er jafn ólík og nemendurnir sem þó eiga það sammerkt að hafa náð að ljúka náminu á þremur árum.Háskólaundirbúningur Lágmarkseiningafjöldi til stúdentsprófs í MH hefur sem fyrr segir verið einn og hinn sami hvort sem sem fólk hefur kosið að skipa náminu á lengri eða skemmri tíma. Óraunhæft er að ætla, hvað sem góðu skipulagi líður, að þorri nemenda ráði við að ljúka stúdentsprófi á þremur árum nema innihald þess verði skert töluvert frá því sem verið hefur. Tölfræði um árangur fyrsta árs háskólanema bendir til þess að stór hópur þeirra hefji námið án fullnægjandi undirbúnings, enda fjölgar nú háskóladeildum sem beita aðgangsprófum til að skera úr um hæfni umsækjenda. Við þessar aðstæður þarf engan að undra að skólar sem vilja standa vörð um stúdentsprófið sem aðgöngumiða að háskólum hiki við uppstokkun sem veikir meginstoðir þess. Í Menntaskólanum við Hamrahlíð var því ákveðið að fyrstu skrefin í styttingarátt yrðu varkár og fælust annars vegar í því að endurskipuleggja hraðferðaráfanga hjá þeim sem koma best undirbúnir úr grunnskóla og hins vegar að heimila fækkun áfanga í frjálsu vali á opnu brautinni. Vegna kjörgreinafyrirkomulagsins er í reynd ekkert sem hindrar nemanda í að sveigja nám sitt á opinni braut í átt að áherslu einhverra hinna brautanna og búa sig undir nám í verkfræði, læknisfræði, lögfræði, hagfræði, tungumálum eða sálfræði svo fátt eitt sé talið. Eftir sem áður standa allar óstyttu brautirnar til boða svo að úr nægu er að velja fyrir nýja MH-inga í haust. Allt hefur sér til ágætis nokkuð og verður fróðlegt að fylgjast með nemendum sem eiga þess kost að velja milli fjögurra ára náms, þriggja ára leiðar með auknu álagi eða jafnvel fara milliveginn og stefna á þrjú og hálft ár. Verði áfram spurn eftir hinu viðameira stúdentsprófi leyfi ég mér að vona að einhverjum menntaskólanna leyfist að halda úti slíku námi til hagsbóta fyrir æsku landsins og þar með samfélagið allt, enda nærist nútímasamfélag á fjölbreytninni í þessum efnum sem öðrum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson Skoðun Halldór 12.04.2026 Halldór Hnífur í hjarta íslenskrar kvikmyndagerðar Helgi Felixson Skoðun Ábyrgð gallaðs kerfis og þegjandi samfélags! Dagbjört Ósk Steindórsdóttir Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Að kasta ábyrgðinni á aðra Sonja Lind E. Eyglóardóttir Skoðun Ljósið elt út í haug Sigurjón Njarðarson Skoðun Dalirnir heilla… eða hvað? Kristinn R Guðlaugsson Skoðun Fleiri vilja standa á hálum ís Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir Skoðun Þau sem borga ekki Silja Sóley Birgisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Dalirnir heilla… eða hvað? Kristinn R Guðlaugsson skrifar Skoðun Fleiri vilja standa á hálum ís Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ljósið elt út í haug Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Hnífur í hjarta íslenskrar kvikmyndagerðar Helgi Felixson skrifar Skoðun Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ábyrgð gallaðs kerfis og þegjandi samfélags! Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar Skoðun Að kasta ábyrgðinni á aðra Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal „hér og þar og þá og nú“ Gunnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Landskjörstjórn gerir athugasemd við spurninguna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Börnin í Hveragerði Þorsteinn Hjartarson,Birgitta Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Afvegaleiðing umræðu um ESB Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Er einmanaleiki nýja tóbakið? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „Dæmisögur Jesú“—Líf sem ber hundraðfaldan ávöxt. Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Norsk Óskarsverðlaun og íslensk kreppa Sveinbjörn I. Baldvinsson skrifar Skoðun Þróun orðræðu um dauðann í íslenskri menningu Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hafa af þér fullveldið, Eiríkur?? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Röddin - Íslensku hljóðvarps- og hlaðvarpsverðlaunin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Myndskýrsla - Hvað er þessi brottfararstöð? Alex Sumarliði skrifar Skoðun Hér er matur, um mat, frá mat, til fæðubótarefna... Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tryggjum fæðu- og eldsneytisöryggi með uppbyggingu á Dysnesi Pétur Ólafsson skrifar Skoðun Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Nýtt Álftanes á einu kjörtímabili Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Evrópa fyrir íslendinga Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Það sem Íslendingar þurfa að skilja Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hættum beit í bænum Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Gagnsæi í ákvarðanatöku Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun í breyttri heimsmynd Erna Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Ekki trúa öllu sem þú lest á samfélagsmiðlum. Komdu í kaffi ég skal sýna þér Grindavík Dagmar Valsdóttir skrifar
Skoðun Ef þetta er samsæri, þá er ég greinilega að gera þetta vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun