Þjóðarsátt II Sigurður Oddsson skrifar 21. maí 2015 07:00 Ég dáist að reiknimeisturum Samtaka atvinnulífsins (SA), sem geta reiknað upp á 0,1%, hvenær allt fari til fjandans. Sem atvinnurekandi skammaðist ég mín fyrir boð SA upp á 3,5% hækkun launa. Sem launagreiðandi veit ég að gangi kröfur stéttarfélaganna eftir munu mörg fyrirtæki fara á hausinn geti þau ekki velt auknum kostnaði út í verðlagið. Það eykur verðbólguna, sem Seðlabankinn mun reyna að slökkva með því að skvetta stýrivaxtahækkun á verðbólgubálið. Árangurinn verður gengisfelling og kjararýrnun. Já, það er ekki öll vitleysan eins.Ættu að einbeita sér að þjóðarsátt Markmiðið hefur alltaf verið að jafna kjörin með meiri hækkun lægstu launa, en alltaf eykst misskiptingin. Seinast tókst að halda %-hækkun í hófi hjá þeim, sem fyrst var samið við. Hinir sem komu á eftir fengu að minnsta kosti sömu %-hækkun og laun hækkuðu þeim mun meir í krónum, sem þau voru hærri fyrir. Þannig fékk milljón króna maðurinn 40.000 kr. hækkun, þegar sá með 250.000 kr. fékk 10.000 kr. Það gerir 360.000 kr. mun á ári. Svo voru aðrir, sem fengu langtum meira. Dæmi um misskiptinguna eru arðgreiðslur og stjórnarlaun hjá HB Granda. Niðurfelling orkuskatts hjá þeim, sem fá raforku á undirverði. Gjafakvóti til útvaldra. Svo eru menn hissa á að Píratar bæti við sig fylgi. Hvernig getur SA eftir allt þetta, sem á undan er gengið, ætlast til að viðsemjendur sínir kynni umbjóðendum sínum 3,5-4% launahækkun og hvernig geta stéttarfélögin ætlast til að SA samþykki 30-50% hækkun launa? Í stað þess að karpa endalaust á þessum nótum væri aðilum vinnumarkaðarins nær að einbeita sér að þjóðarsátt um:1) Hækkun persónuafsláttar á lægstu laun. Þannig kæmi óbein hækkun til þeirra verst settu án þess að ganga upp allan launastigann. Eftir seinustu kjarasamninga sagði einn verklýðsforinginn að ríkisstjórnin hefði ekki viljað hækka skattleysismörkin. Nú hefur ríkisstjórnin boðist til að liðka fyrir krónutöluhækkun en ekki %-hækkun launa. Liggur ekki beint við að láta Sigmund standa við það með hækkun persónuafsláttar í 200.000 kr. á laun lægri en 300.000 kr. fyrir heilsdags vinnu?2) Fella niður tryggingargjaldið. Atvinnurekendur gætu tekið á sig meiri launahækkun losnuðu þeir við tryggingargjaldið, sem er tímaskekkja og ætti að vera búið að fella niður.3) Lækkun stýrivaxta. Það væru miklar kjarabætur fyrir jafnt launþega sem atvinnurekendur lækkuðu stýrivextir úr 6% í 3%. Eftir lækkunina væru þeir samt 6x hærri en hjá Evrópubankanum. Á Íslandi í dag er mestur gróði hjá bönkum og fjármagnsstofnunum, sem lána fé á okurvöxtum. Arðurinn er þeim mun meiri, sem stýrivextir eru hærri. Þannig hefur það verið alveg frá því AGS skikkaði stjórnvöld til að hækka stýrivexti úr 12% í 18%. (Önnur lönd með miklu lægri stýrivexti lækkuðu þá til að koma hjólum atvinnulífsins á snúning). Alla tíð síðan hafa snjóhengju/jöklabréfabraskarar fengið háa vexti í gjaldeyri, sem hefur runnið úr landi þrátt fyrir höftin. Allir nema bankarnir tóku þátt í þjóðarsátt I á seinustu öld. Sagt var að þeir hefðu orðið fyrir svo miklum útlánatöpum, að þeir yrðu að halda áfram sömu okurvaxtastarfseminni og fyrir þjóðarsátt. Nú græða þeir sem aldrei fyrr og kominn tími til að aðilar vinnumarkaðarins sýni hvað í þeim býr og taki á þessum ósóma. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre Skoðun VII. Aðförin að Ólafi Jóhannessyni Hafþór S. Ciesielski Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson Skoðun Partí í Dúfnahólum 10 Þórlindur Kjartansson Skoðun Skoðun Skoðun Ástandið, jólavókaflóðið og druslur nútímans Sæunn I. Marinósdóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra – taka tvö Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Mikilvægi björgunarsveitanna Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Andi hins ókomna á stjórnarheimilinu? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Var ég ekki nógu mikils virði? Kristján Friðbertsson skrifar Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þegar jólasveinninn kemur ekki á hverri nóttu Guðlaugur Kristmundsson skrifar Skoðun 100 lítrar á mínútu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Stöðugleiki sem viðmið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál: tölur segja sögur en hvaða sögu viljum við? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hvaðan koma jólin okkar – og hvað kenna þau okkur um menningu? Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar fyrir heimsendinguna? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Innviðir og öryggi í hættu í höndum ráðherra Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun „Steraleikarnir“ Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Fínpússuð mannvonska Armando Garcia skrifar Skoðun Fólkið sem hverfur... Kristján Fr. Friðbertsson skrifar Skoðun Gengið til friðar Ingibjörg Haraldsdóttir,Elín Oddný Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerið Ásthildi Lóu aftur að ráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Mótmæli bænda í Brussel eru ekki sjónarspil – þau eru viðvörun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar gigtin stjórnar jólunum Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fullveldi í framkvæmd Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Verður Flokkur fólksins að Flótta fólksins? Júlíus Valsson skrifar Skoðun „Rússland hefur ráðist inn í 19 ríki“ - og samt engin ógn? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Fæðuöryggi sem innviðamál í breyttu alþjóðakerfi Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Samstíga ríkisstjórn í sigri og þraut Kristrún Frostadóttir skrifar Skoðun Vextir á verðtryggðum lánum - ögurstund Hjalti Þórisson skrifar Sjá meira
Skoðun Jólin eru rökfræðilega yfirnáttúruleg – og sagan sem menn dóu fyrir lifir enn Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Taktu af skarið – listin að breyta til áður en þú ert tilbúin Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Náungakærleikur á tímum hátíða Hanna Birna Valdimarsdóttir,Harpa Fönn Sigurjónsdóttir,Helga Edwardsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifar
Skoðun Svona gerum við… fjármagn til áfengis- og vímuefnameðferðar aukið um 850 milljónir Alma Möller skrifar
Skoðun Gluggagægir fyrir innan gluggann. Gervigreindin lifnar við Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar