Ójöfnuður Guðmundur Örn Jónsson skrifar 12. maí 2015 07:00 Lengi vel voru upplýsingar um tekjudreifingu á Íslandi vel varðveitt leyndarmál. Þegar aðgerðir ríkisstjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna fóru að auka ójöfnuð upp úr 1990, lögðu flokkarnir Þjóðhagsstofnun niður og hættu að birta upplýsingar um tekjudreifingu. Ísland var því oft eina vestræna landið í skýrslum alþjóðastofnana þar sem ekki voru upplýsingar um tekjudreifingu og enginn á Íslandi virtist hafa sérstakar áhyggjur af því. Nú ber svo við að Viðskiptaráð hefur fengið skyndilegan áhuga á tekjudreifingu og sakar þingmenn Samfylkingarinnar um lygar þegar þeir halda því fram að ójöfnuður hafi aukist. Í þessu samhengi má minnast á orð Mark Twain sem sagði að til væru þrjár tegundir lygi: Lygi, haugalygi og tölfræði. Í tilfelli Viðskiptaráðs á hið síðasta við. Þeir benda réttilega á að ójöfnuður, mældur með Gini-stuðli, hafi lækkað milli 2009 og 2013, þegar vinstristjórnin var við völd. Þeir segja aftur á móti ekki að ójöfnuður jókst um 73% á sama mælikvarða milli 1995 og 2005 þegar sjálfstæðis- og framsóknarmenn voru við völd. Viðskiptaráð segir ekki heldur frá því að eftir að sjálfstæðis- og framsóknarmenn tóku aftur við völdum hafa þeir breytt tekjuskatti og auðlegðarskatti, lækkað veiðigjald og framkvæmt „Leiðréttinguna“ á þann hátt að það mun óhjákvæmilega leiða til aukins ójafnaðar. Rannsóknir hafa sýnt að ójöfnuður hefur mikil og skaðleg áhrif á hagsæld þjóða. Vonandi verður útspil Viðskiptaráðs tilefni til aukinnar umræðu um þennan mikilvæga þátt svo þróunin frá 1990 fram að hruninu árið 2008 endurtaki sig ekki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið X-R mun standa vörð um innviði og arðbærar eignir Reykvíkinga! Linda Jónsdóttir Skoðun Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason Skoðun Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson Skoðun Viltu fleiri bílastæði í miðbæinn? Eyþór Máni Steinarsson Skoðun Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Þollý Rósmundsdóttir Skoðun Sýndarmennska Sjálfstæðisflokksins í bílastæðamálum miðborgarinnar Kristinn Sv. Helgason Skoðun Hafnfirskur evrópuvöllur? Já takk! Árni Stefán Guðjónsson Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun Bílastæði og borgaraleg óhlýðni Helgi Áss Grétarsson Skoðun Skoðun Skoðun Enn eitt neyðarkall Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir,Tómas Joensen,Pia Hansson skrifar Skoðun Jarðgangnaáætlun - staðfesta eða stefnuleysi Sigurður Ragnarsson skrifar Skoðun „Þetta reddast“ og strategísk sýn á alþjóðamál Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar Skoðun Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson skrifar Skoðun Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hafnarfjörður er að verða fullbyggður – hvað gerum við nú? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Hafnfirskur evrópuvöllur? Já takk! Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Áminningarskyldan og þjónusta hins opinbera Kristján Páll Kolka Leifsson skrifar Skoðun 36 stunda vinnuvika, leikskólar og komandi kjarasamningar Guðmundur D. Haraldsson skrifar Skoðun Fyrir fólkið Jónas Þór Birgisson skrifar Skoðun Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir,Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifar Skoðun X-R mun standa vörð um innviði og arðbærar eignir Reykvíkinga! Linda Jónsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði og borgaraleg óhlýðni Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahrepps – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir skrifar Skoðun Viltu fleiri bílastæði í miðbæinn? Eyþór Máni Steinarsson skrifar Skoðun Tækifæri og áskoranir í samningaviðræðum við ESB Vilborg Ása Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Sýndarmennska Sjálfstæðisflokksins í bílastæðamálum miðborgarinnar Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun 100 ára uppbygging á næstu 15 árum Halla Thoroddsen skrifar Skoðun Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Þollý Rósmundsdóttir skrifar Skoðun Dalirnir heilla… eða hvað? Kristinn R Guðlaugsson skrifar Skoðun Fleiri vilja standa á hálum ís Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ljósið elt út í haug Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Hnífur í hjarta íslenskrar kvikmyndagerðar Helgi Felixson skrifar Skoðun Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Ábyrgð gallaðs kerfis og þegjandi samfélags! Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar Skoðun Að kasta ábyrgðinni á aðra Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Sjá meira
Lengi vel voru upplýsingar um tekjudreifingu á Íslandi vel varðveitt leyndarmál. Þegar aðgerðir ríkisstjórnar Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna fóru að auka ójöfnuð upp úr 1990, lögðu flokkarnir Þjóðhagsstofnun niður og hættu að birta upplýsingar um tekjudreifingu. Ísland var því oft eina vestræna landið í skýrslum alþjóðastofnana þar sem ekki voru upplýsingar um tekjudreifingu og enginn á Íslandi virtist hafa sérstakar áhyggjur af því. Nú ber svo við að Viðskiptaráð hefur fengið skyndilegan áhuga á tekjudreifingu og sakar þingmenn Samfylkingarinnar um lygar þegar þeir halda því fram að ójöfnuður hafi aukist. Í þessu samhengi má minnast á orð Mark Twain sem sagði að til væru þrjár tegundir lygi: Lygi, haugalygi og tölfræði. Í tilfelli Viðskiptaráðs á hið síðasta við. Þeir benda réttilega á að ójöfnuður, mældur með Gini-stuðli, hafi lækkað milli 2009 og 2013, þegar vinstristjórnin var við völd. Þeir segja aftur á móti ekki að ójöfnuður jókst um 73% á sama mælikvarða milli 1995 og 2005 þegar sjálfstæðis- og framsóknarmenn voru við völd. Viðskiptaráð segir ekki heldur frá því að eftir að sjálfstæðis- og framsóknarmenn tóku aftur við völdum hafa þeir breytt tekjuskatti og auðlegðarskatti, lækkað veiðigjald og framkvæmt „Leiðréttinguna“ á þann hátt að það mun óhjákvæmilega leiða til aukins ójafnaðar. Rannsóknir hafa sýnt að ójöfnuður hefur mikil og skaðleg áhrif á hagsæld þjóða. Vonandi verður útspil Viðskiptaráðs tilefni til aukinnar umræðu um þennan mikilvæga þátt svo þróunin frá 1990 fram að hruninu árið 2008 endurtaki sig ekki.
Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir,Tómas Joensen,Pia Hansson skrifar
Skoðun Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar
Skoðun Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Börnin okkar eiga betra skilið en gjörunninn mat Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir,Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir skrifar
Skoðun Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahrepps – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Sýndarmennska Sjálfstæðisflokksins í bílastæðamálum miðborgarinnar Kristinn Sv. Helgason skrifar
Skoðun Tíu ára atvinnustefna, tíu árum of seint: Regnhlíf gegn flóðbylgju Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Af stjórnarháttum eins manns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi – Yfirgangur og atlaga að lýðræði Gerður Stefánsdóttir Skoðun