Skoðun

Stórslys í flutningum vofir yfir

Guðmundur Smári Guðmundsson og Ásgeir Ragnarsson og Gísli Níls Einarsson skrifa
Undanfarna mánuði hafa tíðir stormar og miklir umhleypingar reynt verulega á vegakerfi landsins og um leið ógnað umferðaröryggi. Fréttir af umferðaróhöppum og slysum þar sem vöruflutningabílar og rútur með fjölda fólks renna til, fjúka út af eða velta hafa verið tíðar. Mikil mildi er að enginn mannskaði hafi orðið í þeim. Við núverandi aðstæður er aftur á móti aðeins tímaspursmál hvenær það verður.

Á undanförnum árum hafa umsvif í vöru- og fólksflutningum gjörbreyst. Það stafar ekki síst af miklum landflutningum ferskra sjávarafurða og fjölgun ferðamanna sem fara í skipulagðar skoðunarferðir með rútum á veturna. Þrýstingur á að halda áætlun eykst stöðugt enda mikið í húfi. Bæði að afhenda vörur í tíma og veita túristum þá upplifun sem þeir sækjast eftir.

Leiðbeinandi varúðarviðmið

En kappið má ekki undir nokkrum kringumstæðum bera skynsemina ofurliði. Flutningafyrirtækjum, hvort heldur varningurinn er vörur eða fólk, ber að sýna fyllstu aðgát. Nýta þarf í þaula reynslu, þekkingu, tæki, tól og aðferðir sem þróuð hafa verið undanfarin ár til að lágmarka hættu á umferðaróhöppum og -slysum þegar illa viðrar. Þar má benda á leiðbeinandi varúðarviðmið sem Samgöngustofa, Vegagerðin, VÍS og Sjóvá kynntu fyrir tæpum þremur árum, vefi Vegagerðarinnar og Veðurstofu Íslands og ýmis snjallforrit (öpp) þar sem hægt er að fylgjast með færð og vindhraða á vegum landsins. Öll þessi hjálpartæki og leiðbeiningar styðja vel við kerfisbundna og faglega flotastýringu hjá landflutningafyrirtækjum.

Slæmt ástand vega

Versnandi ástand vegakerfisins ætti líka að ýta undir frekari varfærni bílstjóra. Skert fjármagn til viðhalds vega hefur áhrif á ástand þeirra eins og berlega hefur komið í ljós undanfarnar vikur. Holur stækka og þeim fjölgar, minna er mokað en æskilegt er, breytilegt slitlag þar sem ýmsar tilraunir hafa verið gerðar með misgóðum árangri og fleira slíkt dregur úr öryggi í umferðinni.

Þá hefur „ný“ hætta ef svo má segja skotið upp kollinum síðustu vetur. Áður var helst von á að kindur og hestar ráfuðu um þjóðvegi í myrkrinu en nú hafa norðurljósaáhugamenn bæst í fánuna. Oftar en ekki eru þeir dökkklæddir og endurskinslausir til að spilla ekki upplifuninni. Atvinnubílstjórar lenda nú æ oftar í því að keyra óvænt fram á fjölmenna hópa ferðlanga á miðjum vegi snemma nætur. Hvort heldur þeir koma úr eigin bílaleigubíl eða rútu í vegkantinum þá hafa öll ljós verið slökkt svo ekkert skyggi á norðurljósadýrðina. Þetta skapar stórhættu sem aðvífandi bílstjórar greina ekki í náttmyrkrinu fyrr en á síðustu stundu. Að því kemur að þeir verða hættunnar varir of seint.

Samfélagsábyrgð

Að þessu sögðu er vert að hrósa lögreglu og Vegagerðinni sem hafa undanfarnar vikur lokað vegum miklu tíðar vegna veðurs og ófærðar en áður hefur verið gert. Það er alveg skýrt í okkar huga að allir sem koma að vöru- og fólksflutningum, vegaþjónustu, eftirliti og stjórnun á umferð yfir vetrartímann þurfa að snúa bökum saman við að auka umferðaröryggi. En þeir eru ekki einir um hituna. Seljendur vöru og þjónustu sem stóla á flutninga, líkt og sjávarútvegsfyrirtæki og ferðaskipuleggjendur, bera líka mikla ábyrgð. Þeir mega ekki þrýsta á flytjendur að aka út í óvissuna við tvísýnar aðstæður til þess eins að hægt sé að rukka fyrir selda ferð eða freista þess að koma vörum á leiðarenda undir tímapressu. Öryggið verður að vera í fyrirrúmi.




Skoðun

Sjá meira


×