Gera skyr og strokka smjör Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 18. júlí 2015 11:00 Það verður margt við að vera á Árbæjarsafni á morgun og gestir geta meðal annars spreytt sig á skyrgerð. Vísir/AndriMarinó
Það verður nóg um að vera á Árbæjarsafni á morgun á viðburðinum Mjólk í mat og ull í fat, en þar mun gestum safnsins verða veitt innsýn inn í horfinn heim og jafnframt gefast kostur á að taka virkan þátt í hinum ýmsu störfum. „Við ætlum að gera skyr og strokka smjör og leyfa gestunum að spreyta sig á því. Svo verður kona uppi á baðstofulofti sem verður að spinna, eldsmiður í eldsmiðjunni og teymt undir krökkum,“ segir Sigurlaugur Ingólfsson, verkefnastjóri Árbæjarsafns, glaður í bragði en að auki verða ýmsar aðrar uppákomur. Viðburðurinn er haldinn árlega og hentar allri fjölskyldunni. „Þemað er sem sagt Mjólk í mat og ull í fat, sem var svona viðkvæði áður fyrr, að til þess að vera fullgild eiginkona þurftir þú að kunna að koma ull í fat og mjólk í mat og við erum svona að upphefja þennan hluta af heimilisstörfunum,“ segir hann. Að sögn Sigurlaugs tekur allt að 40-50 mínútur að strokka smjör og segir hann að börnunum finnist gaman að fylgjast með smjörgerðinni og ekki síður að fá að spreyta sig. „Það fær þau kannski til að hugsa um hvernig þetta var gert í gamla daga. Vörurnar voru ekki til í ísskápunum, enda enginn ísskápur til.“ Það verður nóg við að vera á safninu á morgun því auk sérstakrar dagskrár verða mjaltir venju samkvæmt, kassabílar, leikfangasýning og messa í kirkju Árbæjarsafns klukkan 14.00 þar sem Kristinn Ágúst Friðfinnsson predikar og að venju verður heitt á könnunni í Dillonshúsi. Safnið verður opnað klukkan 10.00 á morgun og stendur dagskráin fram eftir degi. Inn á safnið kostar 1.400 krónur fyrir fullorðna, en aðgangur er ókeypis fyrir börn undir 18 ára aldri, eldri borgara yfir sjötugu og öryrkja.
Mest lesið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Megas er látinn Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Fleiri fréttir Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Sjá meira