Ný og glæsileg búð opnuð í Hrísey í dag 6. júní 2015 12:00 Linda María Ásgeirsdóttir
Ný Hríseyjarbúð verður opnuð í eyjunni í dag en undanfarið hefur verið unnið að því að hefja rekstur á nýrri verslun í Hrísey eftir að rekstur Júllabúðar lagðist af. Forsaga málsins er sú að í byrjun apríl var haldinn fundur þar sem kynnt voru áform um stofnun hlutafélags um rekstur verslunar í Hrísey. Öllum gafst kostur á að gerast hluthafar, íbúum eyjunnar, sumarhúsaeigendum og öðrum velunnurum. Þann 20. apríl var kynningarfundur sem um fjörutíu manns sóttu og á fundinum voru kynnt drög að rekstraráætlun og áætluðum stofnkostnaði. Góðar umræður spunnust og voru fundarmenn almennt mjög jákvæðir. Á fundinum var hægt að gefa vilyrði fyrir hlutafé í hinu óstofnaða félagi og voru nokkrir sem staðfestu hlut sinn. Í byrjun maí var stofnað hlutafélag um verslunarrekstur í Hrísey og heitir það Hríseyjarbúðin ehf. Alls söfnuðust 3,8 milljónir króna í hlutafé og standa 55 hluthafar á bak við þá upphæð. „Það eru ófáar vinnustundirnar sem liggja að baki og ótrúlegt hvað fólk er búið að leggja á sig mikla vinnu til að koma þessu á koppinn. Búið er að ráða starfsmann í verslunina í sumar og nú er verið að leggja lokahönd á framkvæmdir. Von er á fyrstu vörusendingunni í dag og svo er bara að opna og koma lífi í húsnæðið,“ segir Linda María Ásgeirsdóttir, einn hluthafanna. Í Hrísey búa um 170 manns og yfir sumartímann er fjöldinn talsvert meiri og þörfin fyrir verslun töluverð. „Júllabúð var lokað í mars og það er ekki hægt að vera búðarlaus. Þetta er nauðþurftarbúð, og leggjum við áherslu á þessar daglegu vörur,“ segir Linda María og bætir við spurð út í verðlagið: „Við megum ekki hafa verðlagið of hátt, álagningin er hófleg, á þessum litlu stöðum er bara dýrara að versla því við höfum ekki Bónus.“ Í dag er mikil sjómannadagskrá í Hrísey og er opnun verslunarinnar lokahnykkur hátíðarhaldanna. Auk verslunarinnar verður á sama stað pósthús Hríseyinga. gunnarleo@frettabladid.is
Mest lesið Varð að vera flottastur í eigin teiti Tíska og hönnun Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Menning Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Lífið „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Lífið Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig Lífið Fleiri fréttir Oddvitaáskorun: „Við höfum þurft að skera allt niður vegna hamfaranna“ Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Sjá meira