Sólskinsdagur í Sólheimum Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 15. ágúst 2015 10:00 Í markaðstjaldinu verður grænmeti frá Sólheimum til sölu. Reynir Pétur Steinunnarson göngugarpur, Valgeir F. Backman og Guðrún Rósalind Jóhannsdóttir skátar aðstoða Hörpu Rós Jónsdóttur við að bera lífræna íþróttanammið úr búðinni út í tjald.
Það verður líf og fjör á Sólheimum í dag þar sem haldið verður upp á Lífræna daginn í Menningarveislu Sólheima. Þessi hátíð er nú haldin í tíunda sinn en fleiri stórafmælum verður fagnað þennan dag á Sólheimum. „Það hittir svo á að í ár eru einnig þrjátíu ár frá Íslandsgöngu Reynis Péturs og Skátafélag Sólheima á einnig þrjátíu ára afmæli. Það er því nóg af tilefnum til að fagna,“ segir Valgeir F. Bachman, skipuleggjandi Menningarveislunnar, en þegar blaðamaður heyrir í honum hljóðið er undirbúningur á fullu. Verið er að reisa markaðstjaldið þar sem framleiðslan sem fer fram á Sólheimum verður til sölu með góðum afslætti. Að auki verða tvennir tónleikar í Sólheimakirkju, útileikir og spil fyrir alla fjölskylduna, Háskólalestin mætir með fræðandi skemmtun og sýningin um gönguferð Reynis Péturs verður opin. Skátafélagið vígir nýtt skátaheimili á afmælinu og fagnar með varðeldi þar sem hægt verður að baka brauð á priki og skátasöngvar sungnir. „Það myndast alltaf gífurlega góð stemning á þessum degi og hefur í raun verið góð stemning hjá okkur í allt sumar. Það hefur aldrei verið jafn mikið að gera hjá okkur. Enda er alltaf sól í Sólheimum þótt það rigni aðeins,“ segir Valgeir.Lífræni dagurinn á Menningarveislu Sólheima 12:00-18:00 Kaffihúsið Græna kannan, verslunin Vala og markaðstjald 13:00-17:00 Leikir fyrir börn á öllum aldri á túninu 14:00-17:00 Háskólalestinn í Íþróttaleikhúsinu/ túni. 14:00-15:00 Magnea Tómasdóttir og Inga Björk Ingadóttir með tónleika í Sólheimakirkju 15:00-17:00 Vorsabær II kemur með hesta, teymt undir. 15:30-17:00 Söngur, gleði og varðeldur í Tröllagarði Skátadagurinn, stofnendur segja sögu og vígja Skátaheimili Sólheima 16:00-17:30 Lífrænt grænmetiströllaseyði af hlóðum Tröllagarðs 16:00-17:00 Nikolaus Kattner trúbador treður upp við Grænu könnunna
Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira