Stelpurnar mega nú spila með strákum upp í þriðja flokk Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2015 13:00 Blikakonur fagna sigri í bikarnum. Vísir/Daníel
Tillaga Knattspyrnudeildar Breiðabliks um að leyfa stúlkum að spila með drengjum í þriðja flokki var samþykkt á Ársþingi Knattspyrnusambands Íslands um helgina. Margar af fremstu þjóðum Evrópu í kvennaknattspyrnu, til að mynda Holland og Sviss leyfa stúlkum að spila með drengjum, eins lengi og félögin sjálf vilja. Í Þýskalandi og Sviss mega stúlkur spila með drengjum sem eru einu til tveimur árum yngri. Þetta kemur fram í tillögu Breiðabliks. Breiðablik, sem hefur alið upp margar af bestu knattspyrnukonum þjóðarinnar, vill leyfa stelpunum að spila lengur með strákum en leyfilegt hefur verið hingað til. Það er algengt að kvennalið spili æfingaleiki við yngri strákalið en nú mega stelpurnar styrkja strákaliðin til sextán ára aldurs. Fyrir þetta þing máttu stelpur aðeins taka þátt í keppni með liði karla í 4. aldursflokki og yngri en nú er orðin breyting á því. Félögum er hér eftir heimilt að leyfa konum að taka þátt í keppni með liði karla í 3. aldursflokki "Með þessu gætu efnilegir leikmenn fengið krefjandi verkefni fram eftir aldri með jafnöldrum í stað þess að fara of hratt upp í fullorðinsumhverfi meistaraflokka. Þetta myndi jafnframt gagnast smærri félögum við að manna lið og gefa uppöldum stúlkum krefjandi verkefni ef kvennaflokkarnir eru fámennir," segir í rökstuðningi Blika með tillögunni.
Íslenski boltinn Mest lesið „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Körfubolti Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti Ekki gott kvöld fyrir Ísland í Evrópu- og Sambandsdeildinni Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Handbolti Háttsettur meðlimur CAF fordæmir „viðurstyggilega“ ákvörðun Fótbolti Sögulegur samningur Víkinga Íslenski boltinn „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Handbolti Albert með stoðsendingu þegar Fiorentina fór áfram Fótbolti „Búnir að vera þrír úrslitaleikir og það er einn í viðbót eftir“ Körfubolti Uppgjör: Þór Þ.-Njarðvík 109 - 72: Þórsarar lifa í voninni eftir öflugan sigur Körfubolti Fleiri fréttir Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni Sjá meira