Styrktu tólf heimili til að fagna afmæli Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 8. júní 2015 07:00 Afmæli Hvítabandsins mynd/hvítabandið „
Það merkilega við Hvítabandið er að það er líknarfélag og við söfnum sjálfar með sjálfboðaliðavinnu til líknarmálanna,“ segir Helga Ólafsdóttir, ritari Hvítabandsins. Hvítabandið er 120 ára í ár og hefur starfað óslitið allan þann tíma. Fyrir félagið starfa vaskar konur sem safna pening fyrir mannúðar- og líknarmál. Í dag starfa um fimmtíu konur fyrir félagið ásamt einum karlmanni. Hvítabandið var stofnað 17. apríl 1895 og fagnaði afmæli sínu með því að halda stóran hátíðarfund þar sem veittur var styrkur til bágstaddra fjölskyldna að upphæð 1,2 milljón króna. Það gera þúsund krónur fyrir hvert starfsár Hvítabandsins. Peningurinn rann til tólf barnafjölskyldna. Einnar fyrir hvern starfsáratug félagsins. Það má því segja að styrkveiting Hvítabandsins hafi tekið ríkulegt tillit til afmælisins. „Það sem við gerðum á afmælinu var að styðja tólf heimili um hundrað þúsund krónur. Það átti að vera táknrænt,“ segir Helga. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, sem Hvítabandið er aðili að, var falið að koma gjöfunum áleiðis í hendur fjölskyldnanna. Aðspurð um afmælisárið segir Helga það hafa verið eins og flest önnur ár. Hvítabandið hefur í gegn um tíðina unnið að hinum ýmsu málum. Eitt stærsta verkefni sem samtökin hafa unnið að er bygging sjúkrahúss Hvítabandsins en það var vígt 18. febrúar 1934 og voru sjúkrarúmin 38 talsins. Sjúkrahúsið var fyrst rekið sem sjálfseignarstofnun en síðar gaf Hvítabandið Reykjavíkurborg húsið ásamt innanstokksmunum. Göngudeild geðdeildar frá Landspítalanum fyrir fólk með átröskun er rekin þar í dag. Nú safnar félagið þó fé fyrir önnur verkefni. „Mikið af því rennur til dæmis til Dyngjunnar, áfangaheimilis fyrir konur sem hafa lokið áfengismeðferð. Við styðjum Dyngjuna mjög vel en eins og þú getur ímyndað fær hún ekki mikið frá því opinbera,“ segir Helga.
Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Lífið Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Fleiri fréttir Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Sjá meira