Förðunarfræðingur Lady Gaga til Íslands 5. janúar 2015 10:30 Förðunarmeistarinn Orlando Santiago.
Förðunarmeistarinn Orlando Santiago er væntanlegur til landsins en hann verður með viðburð fyrir förðunarfræðinga og áhugafólk um förðun föstudaginn 9. janúar á Rúbín. Þar mun hann sýna hvernig hann farðar stjörnurnar og svara spurningum um förðun og snyrtivörur. Santiago hóf feril sinn hjá snyrtivörudeild Christian Dior. Síðan þá hefur hann meðal annars séð um förðun í myndböndum Lady Gaga síðustu þrjú ár, unnið fyrir frönsku útgáfu tímaritsins Vogue, starfað hjá snyrtivörurisanum MAC til fjölda ára og var yfir teyminu sem hannar förðunarlínur þeirra. Að auki er hann með sinn eiginn förðunarskóla.Bryndís Kristofer förðunar-og augabrúnasérfræðingur.Vísir/valliFörðunarfræðingurinn Bryndís Kristofer sá um komu hans til landsins. Hún kynntist Santiago á The Makeup Show, einum stærsta förðunarviðburði og -sýningu í heimi fyrir fagfólk. „Ég bý í Orlando og fór á sýninguna þar og hitti Santiago, en hann var að kenna. Við náðum svo vel saman að ég bauð honum að koma til landsins og halda smá námskeið,“ segir Bryndís. Hún lærði förðun árið 2012 hjá MOOD Makeup School á Íslandi og þaðan fór hún til Parísar að læra augabrúnasérfræði og starfar sem slík í Orlando í dag. „Það er mikill heiður að fá hann til landsins þar sem flestir förðunarfræðingar af þessari gráðu eru ekki að kenna lengur. Hann byrjar á því að sýna nokkrar gerðir förðunar og svo ætlar hann að svara spurningum, svo það er um að gera að vera tilbúinn með spurningar handa honum,“ segir Bryndís. Í framhaldi af námskeiðinu hér heima vonast þau til þess að geta flutt The Makeup Show til Skandinavíu, en verið er að skoða að halda sýninguna í Danmörku. „Það er ekkert sambærilegt þessari sýningu í Skandinavíu, svo við vonumst til þess að geta farið með þetta lengra og að námskeiðið hér verði kveikjan að meiru. Það yrði gott fyrir þennan bransa og myndi auka samskiptin og styrkja tengslanetið á milli förðunarfræðinga,“ segir Bryndís. Viðburðurinn er haldinn á Rúbín, hefst klukkan 19.00 og kostar 4.500 krónur inn.
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Sjá meira