Búið spil hjá Kourtney og Scott? Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 8. júlí 2015 10:45 Scott og Kourtney hafa verið saman frá árinu 2006 og eiga saman þrjú börn. Vísir/Getty
Erlendir slúðurmiðlar keppast nú við að segja frá því að raunveruleikaþáttastjarnan Kourtney Kardashian og Scott Disick séu hætt saman, en þau hafa verið saman í rúm níu ár og eiga saman þrjú börn. Kourtney og systur hennar, Kim, Khloé, Kendall og Kylie, þekkja flestir úr þáttunum Keeping up with the Kardashians þar sem hún og fjölskylda hennar hleypa áhorfendum inn í líf sitt. Þátturinn hefur verið sýndur á sjónvarpsstöðinni E! frá árinu 2007 og hefur Kourtney einnig tekið þátt í fleiri raunveruleikaþáttum ásamt systrum sínum. Hún hefur, í samvinnu við Kim og Khloé, hannað fatnað, ilmvötn og gefið út bók. Kourtney er elst þeirra systra, fædd árið 1979. Samband Scotts og Kourtney hefur komið talsvert við sögu í þáttunum. Þau byrjuðu að hittast árið 2006 og samkvæmt þáttunum og erlendum miðlum hefur samband þeirra verið stormasamt á köflum. Scott er sagður mikið partídýr sem sagt er hafa sett strik í reikninginn og hefur hann farið í áfengismeðferðir sem virðast ekki hafa skilað tilætluðum árangri og sagt er að þau hafi lengi sofið hvort í sínu herberginu. Árið 2009 eiga þau að hafa hætt saman en stuttu eftir það komst Kourtney að því að hún var ólétt og tóku þau aftur saman og eignuðust sitt fyrsta barn, soninn Mason Dash Disick þann 14. desember. Árið 2012 eignaðist parið dótturina Penelope Scotland Disick, sem er fædd þann 8. júlí og eftir það virtist sambandið blómstra, að því er séð varð í raunveruleikaþættinum og á Instagram-síðum þeirra og í desember á síðasta ári, á afmælisdegi Masons, eignaðist parið sitt þriðja barn, Reign Aston Disick. Kourtney fékk sig svo fullsadda þegar að myndir frá því í síðustu viku af Scott og stílistanum Chloe Bartoli, sem sögð er fyrrverandi kærasta Scotts, birtust í erlendum miðlum þar sem þau sjást láta vel að hvort öðru í Mónakó og á Kourtney að hafa slitið sambandinu fyrir fullt og allt um helgina. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sögusagnir fara á kreik um að Scott hafi verið henni ótrúr, en einnig er talið að mikil drykkja hans og partístand hafi haft áhrif á ákvörðunina, en hann hefur verið iðinn við að fá sér í glas á síðustu misserum og aðstandendur hans og vinir sagðir hafa áhyggjur af honum. Það var vefmiðillinn E! sem sagði fyrst frá sambandsslitunum en sjónvarpsþáttur fjölskyldunnar hefur verið sýndur á samnefndri sjónvarpsstöð frá upphafi.
Tengdar fréttir "Við höfum ekki sofið saman í fimm ár“ Erfiðleikar í sambandi Kourtney Kardashian og Scott Disick. 26. nóvember 2014 18:30 Eiga von á þriðja barninu Fjölgun hjá Kourtney Kardashian og Scott Disick. 4. júní 2014 14:19 Mest lesið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Lífið Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 króna Lífið samstarf Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Lífið Fleiri fréttir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Sjá meira
"Við höfum ekki sofið saman í fimm ár“ Erfiðleikar í sambandi Kourtney Kardashian og Scott Disick. 26. nóvember 2014 18:30
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein