Smurði sæðinu um allt og fékk koss á kinn frá mömmu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 31. janúar 2015 18:12 Jón Óðinn Waage.
Júdóþjálfarinn Jón Óðinn Waage á Akureyri vildi óska þess að fólk af hans kynslóð hefði fengið kynfræðslu á borð við þá sem kynfræðingurinn Sigga Dögg býður upp á. Jón Óðinn mætti á fyrirlestur hjá Siggu Dögg á dögunum og er fullviss um að hún sé að vinna frábært starf. Jón Óðinn ritar stórskemmtilegan pistil í Akureyri vikublað þar sem hann lýsir því hvernig honum hafi orðið við þegar fjórtán ára sonur hans og fjórtán ára fósturdóttir komu heim úr skólanum. Sonurinn sagðist aldrei ætla að stunda kynlíf en dóttirinn hafði fengið smokk og þau skilaboð að smokkinn skildi hún prófa. „Mér fannst ég vera að missa tökin á uppeldinu, hvað var eiginlega í gangi í þessu skólakerfi? Svarið var að bæði höfðu verið á fyrirlestri hjá Siggu Dögg kynfræðingi. Þegar við foreldrar fengum síðan boð um að mæta líka á fyrirlestur hjá Siggu Dögg þá mætti ég fyrstur manna,“ segir Jón Óðinn. Var hann ánægður með fyrirlesturinn eins og áður var komið inn á. Rifjar júdóþjálfarinn upp þegar hann var í barnaskóla og vinur hans stríddi nokkrum stelpum með því að kalla þær túrista. Hann hefði haldið að það væri vegna þess að þær hefðu verið í ferðalagi. Hann hafi ekkert skilið hvers vegna þær tóku þessari stríðni illa. „Þegar að ég losaði sæði í fyrsta skipti þá fékk ég áfall, hélt ég hefði pissað á mig,“ segir Jón Óðinn. Við fermingaraldur hafi hann komist yfir bókina Sjafnaryndi sem var kennslubók í kynlífi. Þar hafi hann meðal annars lesið þann fróðleik að sæði væri gott fyrir húðina. „Ég tók þetta bókstaflega. Nuddaði því fyrst á magann, en það var merkilegt hvað varð mikið úr þessu litla magni. Að maganum loknum var bringan smurð. Afgangurinn fór á andlitið,“ segir Jón Óðinn. Alla tíð síðan hafi hann haft mjög sterka húð og varla hrukku að sjá. „Það var samt alltaf dálítið sérstakt þegar mamma kom heim og kyssti mig á kinnina,“ eru lokaorð pistilsins sem vakið hefur mikla athygli og fengið margan til að skella upp úr ef marka má ummælakerfi Akureyri vikublaðs.
Tengdar fréttir Það er eitthvað að drengnum okkar Jón Óðinn Waage segir frá því hvernig syni hans var bjargað nokkurra daga gömlum og kynnum sínum af Múhameð 4. desember 2014 13:45 "Það bjargaði lífi sonar míns hvað flugvöllurinn var nálægt" Aðgengi að bestu læknisþjónustunni verður að vera gott fyrir alla landsmenn. Þetta segir faðir drengs sem ekki væri á lífi ef lengra væri á milli Reykjavíkurflugvallar og Landspítalans. Hann segir hugmyndir um flutning flugvallarins vanhugsaðar. 19. ágúst 2013 18:42 "Þeir sem telja þetta eðlilegar aðfarir eiga ekki að starfa í lögreglunni“ Fyrrverandi lögreglumaður skrifar um umdeilda handtöku. 11. júlí 2013 17:21 Börnin grátbáðu feður sína að hætta Fyrrverandi lögregluþjónn skrifar um átakanlega upplifun sína af áfengisneyslu foreldra fyrir framan börnin sín. 30. desember 2013 14:33 Mest lesið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira
Það er eitthvað að drengnum okkar Jón Óðinn Waage segir frá því hvernig syni hans var bjargað nokkurra daga gömlum og kynnum sínum af Múhameð 4. desember 2014 13:45
"Það bjargaði lífi sonar míns hvað flugvöllurinn var nálægt" Aðgengi að bestu læknisþjónustunni verður að vera gott fyrir alla landsmenn. Þetta segir faðir drengs sem ekki væri á lífi ef lengra væri á milli Reykjavíkurflugvallar og Landspítalans. Hann segir hugmyndir um flutning flugvallarins vanhugsaðar. 19. ágúst 2013 18:42
"Þeir sem telja þetta eðlilegar aðfarir eiga ekki að starfa í lögreglunni“ Fyrrverandi lögreglumaður skrifar um umdeilda handtöku. 11. júlí 2013 17:21
Börnin grátbáðu feður sína að hætta Fyrrverandi lögregluþjónn skrifar um átakanlega upplifun sína af áfengisneyslu foreldra fyrir framan börnin sín. 30. desember 2013 14:33