67 ára gömul og aðeins einu sinni misst úr Þjóðhátíð Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. ágúst 2015 20:57
Stemningin í Herjólfsdal var sérstaklega góð í blíðviðrinu í gærkvöldi og langt fram á nótt. Fólk mætti óvenjusnemma í brekkuna í ár enda veðrið með allra besta móti. Það var Friðrik Dór sem fékk þann heiður að stíga fyrstur á stokk á stóra sviðinu í Herjólfsdal og fólk tók vel undir í brekkunni eins og heyra má í spilaranum hér að ofan. Sálin hans Jóns míns samdi þjóðhátíðarlagið í ár og frumflutti á sviði fyrir gesti. Hápunktur föstudagskvöldsins er á miðnætti þegar kveikt er á brennunni. Aðdragandinn var sérstaklega glæsilegur þar sem flugeldar fóru á loft og sjónarspilið undir fullu tungli á Heimaey. Tendrunin á bálinu gekk þó ekki þrautalaust fyrir sig. Ásta María Jónasdóttir í Brekkugötu 11 í Heimaey var að grilla þegar fréttastofa náði tali af henni á þjóðhátíð í kvöld. Ásta er svo sannarlega Eyjakona í húð og hár en hún hefur einungis einu sinni misst af skemmtanahöldunum í Vestmannaeyjum þessa fyrstu helgina í ágúst á sinni 67 ára löngu ævi. Hún vill að Íslendingar prufi að koma alla vega einu sinni á þjóðhátíð. 'Þetta er fjölskylduhátíð og hér er ég með mína fjölskyldu. Við höfum alltaf matarboð á þjóðhátíð fyrir mín börn og gesti þeirra og svo förum við saman í dalinn,“ segir Ásta og bætir við að þau fjölskyldan séu þar með hvítt tjald þangað sem allir eru velkomnir. Hún ætlar sér að halda áfram að sækja hátíðina. 'Ég ætla að vera á þjóðhátíð það sem eftir er nema að það verði einhver heilsubrestur,“ sagði Ásta í samtali við Kolbein Tuma Daðason í Eyjum í dag.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira