Meðferð við fíknsjúkdómi er dýrmæt Valgerður Rúnarsdóttir skrifar 7. maí 2015 07:00 Fíknsjúkdómurinn er sjálfstæður, langvinnur heilasjúkdómur með alvarlegum afleiðingum. Við honum eru til sérhæfðar meðferðir. Hindranir fyrir því að leita sér meðferðar eru miklar, stundum gríðarlegar hjá einstaklingnum sjálfum og getur farið illa. Einangrun og sjálfsásakanir eru oft áberandi meðal sjúklinganna. Fordómar hins veika eru oft mestir. Nauðsynlegt er að halda áfram að stýra þessum líffræðilega sjúkdómi inn í heilbrigðiskerfið og sinna honum þar, þrátt fyrir að hann hafi jafnframt slæmar félagslegar og persónulegar afleiðingar. Aðgengi að meðferð er afar mikilvægt. Á Íslandi fá fleiri meðferð en í flestum löndum sem við þekkjum til. En þar er líka kvartað mikið yfir „treatment gap“, þ.e. að flestir sem þurfa meðferð fá hana ekki, allt upp í 90%. Við erum betur stödd, samt fá ekki allir meðferð sem þurfa hér. Enn eru fordómar og enn leitar fólk sér ekki hjálpar þótt vandinn vaxi. SÁÁ veitir mikla meðferð og leggur sjúklinga inn á Vog, oftar en 2.000 sinnum á ári. Stór hluti rekstrarkostnaðar SÁÁ kemur beint frá almenningi, með framlögum, styrkjum, álfasölu og fleiru sem Íslendingar hafa tekið svo vel undir öll þessi ár. Takk fyrir það. Það er mikil þörf og við viljum hafa þennan kost að geta leitað í meðferð þegar á þarf að halda. Án beins stuðnings almennings væri það framboð fátæklegt. Það er mikilvægt að passa vel upp á það sem við höfum og gengur vel. Meðferðir sem SÁÁ býður upp á eru margþættar og sinna þessum sjúkdómi á mismunandi stigum og með mismunandi leiðum. Batinn er í áföngum og krefst sífells aðhalds. Fjöldinn sem hægt er að sinna, vegna SÁÁ, er mikill. Það er dýrmætt. Meðferðin er ekki fyrir fáa, heldur alla sem sækja og þurfa á henni að halda. Fjöldinn er styrkur. Flestir þurfa lítið inngrip, meðferð á Vogi, eftirmeðferð í göngudeild eða Vík/Staðarfelli, þetta er stuttur tími. Aðrir þurfa endurtekningu, aðra meðferð samhliða, lyfjameðferð, áfangahús o.fl. Það er líka svigrúm fyrir það, og það er líka dýrmætt. Fjölskylda fíkla, börn, systkini, foreldrar, makar, geta fengið meðferð á göngudeild SÁÁ einnig. Það er dýrmætt. Fíknsjúkdómurinn brennur á mörgum fjölskyldum, og flestir koma beint eða óbeint að þeim fjölbreytta vanda sem hann veldur. Á sama hátt er bati frá fíknsjúkdómi og þeir möguleikar í lífinu sem hann getur veitt, mörgum hugleikinn. Það er hvetjandi til að auka í fremur en draga úr, þegar rætt er um meðferð og önnur inngrip til að styðja til bata. Þetta er meðbyr og skilningur sem SÁÁ finnur frá almenningi og fagfólki í hversdagsleikanum, en ekki síst í álfavikunni vor hvert. Takk fyrir stuðninginn við SÁÁ, við meðferð alkóhólista og annarra fíkla, enn á ný. Gleðilegt sumar.Hefurðu sögu að segja eða skoðun að deila? Ef svo er sendu okkur grein ásamt mynd á netfangið ritstjorn(hja)visir.is Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Allir íbúar Kópavogs skipta máli Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Our home, our vote, our future Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Er borgarlínan bókstafsins virði? Ævar Örn Jóhannsson skrifar Skoðun Borgarlínan er háskaleg tilraun Karólína Jónsdóttir skrifar Skoðun Af hverju flytjum við fólkið, í stað þjónustunnar? Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Traustur fjárhagur er ekki tilviljun Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller skrifar Skoðun Enginn á að standa einn Joanna (Asia) Mrowiec skrifar Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Sala á opinberum eignum Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Valdimar Víðisson hlustar: Það sem ég lærði af Coda Terminal Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Vörumst vinstri stjórn og eftirlíkingar í Hafnarfirði Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar Skoðun Lífsgæði fyrir alla - Áhersluatriði Öldungaráðs Viðreisnar Sverrir Kaaber skrifar Skoðun Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason skrifar Skoðun Samgöngumál í ólestri í Hafnarfirði - aðgerða þörf strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Falið fagstarf frístundaheimila Hafdís Oddgeirsdóttir,Viktor Orri Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvað verður um Ylju neyslurými? Bjartur Hrafn Jóhannsson,Hákon Skúlason skrifar Skoðun Áfram og upp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerum miðbæ Garðabæjar iðandi af lífi og menningu Vilmar Pétursson skrifar Skoðun Betri Hafnarfjörður Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen skrifar Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Aukum valfrelsi foreldra í Mosfellsbæ Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Heilsársbúseta er hjarta samfélagins Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík verður að styðja við fátæk börn í borginni Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun
Skoðun Byggjum upp íbúðir fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur svo börnin geti flutt að heiman Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar
Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar
Participation and Local Elections: A reflection from someone who cannot vote yet Gemma Fornell Parra Skoðun