Á ég að ráðleggja börnunum mínum að ganga menntaveginn? Gunnsteinn Haraldsson skrifar 28. maí 2015 07:00 Á ég að ráðleggja dætrum mínum að verja sex, átta eða kannski ellefu árum af ævi sinni í að afla sér aukinnar þekkingar? Þekkingar sem kemur til með að færa þeim bætt kjör, styttri vinnutíma og aukin lífsgæði – eða hvað? Samkvæmt úttekt Viðskiptaráðs bætir háskólanám aðeins 16 prósentum við laun þeirra sem hafa eingöngu grunnskólamenntun. Það þýðir að háskólamenntaður starfsmaður þarf að vinna í 38 ár til að vinna upp þau laun sem viðkomandi aflar ekki á meðan námi í framhaldsskóla og háskóla stendur. Á ég að ráðleggja dætrum mínum að mennta sig, fara í framhaldsskóla og svo háskóla þegar það tekur þær 38 ár „að ná sömu uppsöfnuðu heildartekjum og þeir sem hafa aðeins grunnskólapróf“. Til að komast aftur upp í núllið? Á ég að segja þeim að vera þolinmóðar, því þegar þær eru orðnar 60 ára gamlar muni þetta sko fara að borga sig? Á ég að segja þeim að þegar þær eiga sjö ár eftir af starfsævinni komi sko heldur betur til með að muna um að hafa gengið menntaveginn? En sem betur fer stendur valið ekki bara um þetta tvennt. Það er nefnilega einn kostur í viðbót. Fleiri og fleiri nýta sér þann ótvíræða kost að það er stutt til Keflavíkur, og þaðan er stutt flug til annarra landa, landa þar sem menntun er metin til launa. Kannski ætti ég bara að ráðleggja dætrum mínum að fara í menntaskóla og svo í háskóla og taka svo fyrstu rútu til Keflavíkur. Það verður allt í lagi, þær þurfa ekki að hafa áhyggjur af okkur, foreldrum sínum, við förum bara með þeim. Ef við verðum ekki farin áður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson Skoðun Hildur. Borgarstjórinn okkar Hildur Sverrisdóttir Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Brostnar vonir í Kópavogi Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sala á opinberum eignum Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Valdimar Víðisson hlustar: Það sem ég lærði af Coda Terminal Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Vörumst vinstri stjórn og eftirlíkingar í Hafnarfirði Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar Skoðun Lífsgæði fyrir alla - Áhersluatriði Öldungaráðs Viðreisnar Sverrir Kaaber skrifar Skoðun Kársnes á krossgötum Máni Þór Magnason skrifar Skoðun Samgöngumál í ólestri í Hafnarfirði - aðgerða þörf strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Falið fagstarf frístundaheimila Hafdís Oddgeirsdóttir,Viktor Orri Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvað verður um Ylju neyslurými? Bjartur Hrafn Jóhannsson,Hákon Skúlason skrifar Skoðun Áfram og upp Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Kennarar þurfa ekki skammir heldur stuðning okkar Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason skrifar Skoðun Ný Heiðmörk fyrir Reykvíkinga Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Gerum miðbæ Garðabæjar iðandi af lífi og menningu Vilmar Pétursson skrifar Skoðun Betri Hafnarfjörður Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Ábyrgð sveitarfélaga varpað á aðstandendur Jóna Elísabet Ottesen skrifar Skoðun Takk Hveragerði Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Aukum valfrelsi foreldra í Mosfellsbæ Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar Skoðun Fáheyrðar yfirlýsingar innviðaráðherra Lilja S. Jónsdóttir,Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Heilsársbúseta er hjarta samfélagins Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík verður að styðja við fátæk börn í borginni Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálfskapaður vandi Evrópu Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Fyrirmyndir Sigrún Steinarsdóttir skrifar Skoðun Kosningar og leikskólamál Sigríður Clausen skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir skrifar Skoðun Þetta gerðum við á 15 mánuðum Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Fullveldið er falið í gagnaeign Hjörtur Smárason skrifar Skoðun Borgar menning sig? Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Sjá meira
Á ég að ráðleggja dætrum mínum að verja sex, átta eða kannski ellefu árum af ævi sinni í að afla sér aukinnar þekkingar? Þekkingar sem kemur til með að færa þeim bætt kjör, styttri vinnutíma og aukin lífsgæði – eða hvað? Samkvæmt úttekt Viðskiptaráðs bætir háskólanám aðeins 16 prósentum við laun þeirra sem hafa eingöngu grunnskólamenntun. Það þýðir að háskólamenntaður starfsmaður þarf að vinna í 38 ár til að vinna upp þau laun sem viðkomandi aflar ekki á meðan námi í framhaldsskóla og háskóla stendur. Á ég að ráðleggja dætrum mínum að mennta sig, fara í framhaldsskóla og svo háskóla þegar það tekur þær 38 ár „að ná sömu uppsöfnuðu heildartekjum og þeir sem hafa aðeins grunnskólapróf“. Til að komast aftur upp í núllið? Á ég að segja þeim að vera þolinmóðar, því þegar þær eru orðnar 60 ára gamlar muni þetta sko fara að borga sig? Á ég að segja þeim að þegar þær eiga sjö ár eftir af starfsævinni komi sko heldur betur til með að muna um að hafa gengið menntaveginn? En sem betur fer stendur valið ekki bara um þetta tvennt. Það er nefnilega einn kostur í viðbót. Fleiri og fleiri nýta sér þann ótvíræða kost að það er stutt til Keflavíkur, og þaðan er stutt flug til annarra landa, landa þar sem menntun er metin til launa. Kannski ætti ég bara að ráðleggja dætrum mínum að fara í menntaskóla og svo í háskóla og taka svo fyrstu rútu til Keflavíkur. Það verður allt í lagi, þær þurfa ekki að hafa áhyggjur af okkur, foreldrum sínum, við förum bara með þeim. Ef við verðum ekki farin áður.
Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun
Skoðun Miðflokkurinn: Áform um uppbyggingu og bætur á sundlaugum Hafnarfjarðar Signý J. Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir skrifar
Hvar á láglaunafólk að búa? Ábyrgð sveitarfélaga Róbert Farestveit,Jana Eir Víglundsdóttir Skoðun