Jafnrétti handa öllum Guðrún Ansnes skrifar 28. maí 2015 12:00 Fanney vonast til að sjá sem flesta á Nauthól kl. 8.30 í dag. Vísir/Stefán „
Með þessu viljum við vekja jákvæða athygli á þeim fyrirtækjum sem hafa sett jafnrétti á oddinn og hvetja um leið önnur til að feta sömu slóð,“ segir Fanney Karlsdóttir, stjórnarkona í UN Women á Íslandi og Festu og fræðslustjóri Betware. Í dag fer fram morgunverðarfundur undir yfirskriftinni „Eru til karla- og kvennastörf?“ „Við munum einblína á tæknigeirann í þetta skiptið og skorum karllæga menningu innan hans á hólm,“ útskýrir Fanney og bætir við að allra hagur sé fólginn í jafnrétti innan fyrirtækja þar sem jöfn tækifæri óháð kyni séu í hávegum höfð. „Kynbundinn launamunur er staðreynd á Íslandi í dag og ekki er hjá því komist að tala um bakslag í jafnréttisbaráttunni sé litið til fækkunar karla sem sjá sér fært að taka feðraorlof,“ bendir Fanney á. Að loknum fundarstörfum afhendir Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, svo Hvatningarverðlaunin 2015. Verðlaunin eru afhent í annað skiptið í ár, en þau voru í fyrsta skipti afhent í fyrra og féllu þá í skaut Rio Tinto Alcan. Hvatningarverðlaunin eru því komin til að vera, enda mikilvægt að halda málstaðnum á lofti. „Með þessum verðlaunum viljum við hvetja stjórnendur fyrirtækja til að taka ábyrgð og einsetja sér að koma upp markvissri jafnréttisáætlun. Ein leið til þess er að vinna eftir sjö viðmiðum alþjóðlegs jafnréttissáttmála sem UN Women er í forsvari fyrir og nýta sér tengslanet fyrirtækja innan Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð,“ bætir Fanney við hvetjandi.
Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Alaska og Flóni hætt saman Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Fleiri fréttir Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Sjá meira