Eitthvað sem dregur mig á fjöllin Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 24. júlí 2015 11:15 Íris ásamt dóttur sinni, Rögnu Sif Árnadóttur, að koma úr einni skoðunarferðinni. Mynd/Úr einkasafni „
Það tók mig mörg ár að gera þessa bók,“ segir Íris Marelsdóttir, sjúkraþjálfari og höfundur bókarinnar Gönguleiðir að Fjallabaki. „Ég gekk allar leiðirnar oft, fyrst ein, svo með manninum mínum eða vinahópum. Ég reyndi líka að safna sögum sem tengjast landinu sem farið er um, helst sem nýjustum, það er erfiðast.“ Spurð hvort hún skrifi á ferðalögum svarar Íris: „Ég set alla GPS-punkta inn á tæki, tek margar myndir og skrifa bæði á staðnum og um leið og ég kem í hús.“ Fáar konur hafa lagt fyrir sig gerð göngubóka. Íris segir sinn óendanlega áhuga á landinu og útivist ástæðu þess að hún réðist í það. „Ég fór oft með foreldrum mínum á Fjallabak nyrðra í uppvextinum og er búin að vera lengi í hjálparsveit, eiginmaðurinn líka og öll börnin. Við hjónin vorum landverðir í Þórsmörk í þrjú sumur um tvítugt, sáum um tjaldstæðin í Básum, Endum og Húsadal og fórum um fjöllin að reka fé út fyrir girðingar. Því kunnum við Þórsmörkina og Goðalandið utan að.Ein myndanna í bókinni er tekin í Stígsverum, Stóra-Súla gnæfir yfir.Mynd/Vilhelm GunnarssonSeinna réði ég mig sem landvörð á Fjallabaki syðra í þrjú sumur og fór með alla krakkana á fjöll, sagði stundum að þau væru í stærsta sandkassa í heimi, það var Mælifellssandurinn. Við vorum í Hvanngili og ég passaði líka skálana í Króki og á Hungurfit. Svo kom bóndinn í sumarfríum.“ Íris ætlar að leysa skálaverðina í Hvanngili af um verslunarmannahelgina. Er hún hætt að vista sig á fjöllum heilu sumrin? „Ég hef dregið úr því en fjöllin toga svo ég sinni skálavörslu í stuttan tíma og tek að mér að leiðsegja hópum um fáfarnar slóðir.“ Bókin Gönguleiðir að Fjallabaki teygir sig dálítið víða, Íris líkir Fjallabaki við sólina sem stafar geislum í allar áttir. Hún bendir á að bókin fari vel í bakpoka og þar sem hún sjálf safni leiðarlýsingum og minningabrotum gæti hún þess að hafa dálka í bókinni fyrir ferðafólk að skrifa í.
Mest lesið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Fleiri fréttir Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Sjá meira