Húfur til höfuðs einelti í Bolungarvík Guðrún Ansnes skrifar 22. apríl 2015 12:00 Hópurinn sæll og glaður með húfurnar sínar. Ragnhildur segist vona að verkefnið taki sig upp víðar.
Ragnheiður I. Ragnarsdóttir tók sig til og töfraði fram úr erminni sextán prjónaðar eineltishúfur á heilan fyrsta bekk í Grunnskólanum í Bolungarvík. Ragnheiður á son í bekknum. „Þetta var nú ekki mikið mál, held það hafi tekið mig einn og hálfan mánuð að prjóna þessar,“ segir Ragnheiður, sem þó segist engin framleiðsluvél þegar kemur að prjónaskap. Hún lét til skarar skríða og mundaði prjónana er hún hnaut um svipaðar húfur á norskri prjónasíðu og þar sagði að húfurnar hefðu fengið ágætis meðbyr þar í landi í baráttunni gegn einelti. „Mér datt í hug að yfirfæra þær á íslensku og sex ára gamall sonur minn elskaði húfuna sem ég gerði fyrst, svo úr varð að ég bar hugmyndina undir umsjónarkennara bekkjarins. Hún tók svona líka vel í hana.“ Úr varð að kennarinn, Guðmunda Hreinsdóttir, fór af stað með heljarinnar verkefni tengt húfunum. „Það er ofsalega gaman að foreldrar skuli taka frumkvæðið í sínar hendur,“ útskýrir Guðmunda. Guðmunda segir mikilvægt að byrja strax að innprenta börnunum að einelti líðist ekki og því frábært að fara af stað með þetta verkefni í fyrsta bekk. Húfurnar eru svipaðar í grunninn en allar ólíkar. „Rétt eins og við öll, við erum einstök og það ber að muna,“ segir Guðmunda sem vonar að húfurnar verði áminning um ókomin ár, um að hafna einelti. Ragnheiður segist jafnframt hafa orðið vör við áhuga annarra skóla á þessari óvenjulegu leið. „Auðvitað væri það ekki nema frábært að koma kannski af stað trendi í þessu,“ en húfurnar eru vissulega ákveðin yfirlýsing þess sem ber hana.
Tengdar fréttir Út að borða – gegn ofbeldi á börnum Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa starfað að réttindum og velferð barna á Íslandi og erlendis í 25 ár. Samtökin eru aðili að Save the Children International sem eru stærstu frjálsu félagasamtök í heiminum sem vinna eingöngu í þágu barna. 6. mars 2015 07:00 Vinátta og samtal Við sem skrifum þessa grein eigum margt sameiginlegt. Bæði vinnum við með börnum, við erum kennari og æskulýðsprestur, okkur eru trúarhefðir okkar kærar, við erum múslimi og kristinn, og við viljum að um trú okkar og hefðir sé rætt af sanngirni. 16. apríl 2015 07:00 „Gat ekki gert mömmu og pabba þetta, svo ég bjó um sárið og þreif upp blóðið“ Gunnhildur Þórðardóttir varð fyrir miklu einelti í æsku en er núna komin á góðan stað. 17. apríl 2015 11:30 Mest lesið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Björk og Yara nýtt par Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Fleiri fréttir Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Sjá meira
Út að borða – gegn ofbeldi á börnum Barnaheill – Save the Children á Íslandi hafa starfað að réttindum og velferð barna á Íslandi og erlendis í 25 ár. Samtökin eru aðili að Save the Children International sem eru stærstu frjálsu félagasamtök í heiminum sem vinna eingöngu í þágu barna. 6. mars 2015 07:00
Vinátta og samtal Við sem skrifum þessa grein eigum margt sameiginlegt. Bæði vinnum við með börnum, við erum kennari og æskulýðsprestur, okkur eru trúarhefðir okkar kærar, við erum múslimi og kristinn, og við viljum að um trú okkar og hefðir sé rætt af sanngirni. 16. apríl 2015 07:00
„Gat ekki gert mömmu og pabba þetta, svo ég bjó um sárið og þreif upp blóðið“ Gunnhildur Þórðardóttir varð fyrir miklu einelti í æsku en er núna komin á góðan stað. 17. apríl 2015 11:30