Bestu bankarnir Jónas Gunnar Einarsson skrifar 19. júní 2015 07:00 Ný fjármálastöðugleikaskýrsla Seðlabanka Íslands er furðuleg málsvörn fyrir aukinni arðsemi af bankarekstri, í mótsögn við bankarekstur í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og klassíska hugmyndafræði bankarekstrar.Klassísk hugmyndafræði Bestu bankarnir eru samkvæmt klassískri hugmyndafræði bankarekstrar þeir bankar sem gæta sem mest hófs í arðsemiskröfu og uppsöfnun eigin fjár svo að viðskiptavinirnir, heimilin, atvinnurekstur og samfélag blómstri sem allra fegurst og best. Á þessum grundvelli er bönkum veitt skuldatrygging af hálfu seðlabanka sem lánveitanda til þrautavara. Engin önnur fyrirtæki fá svo vegleg forréttindi. Þess vegna ber að meta frammistöðu banka með öðrum hætti en annarra fyrirtækja.Bestu norrænu bankarnir Bestu norrænu bankarnir árið 2014 eru skv. þessu eftirfarandi (Mbl. 28. apr. 15, bls. 16): Danske bank 0,12% arðsemi eigna. Storebrand (NO) 0,38% SkandiaBanken (SE) 0,39% Nordea Bank (SE) 0,51% Arbejdernes Landsbank (DK) 0,69% Íslandsbanki (IS) 2,56% Landsbankinn (IS) 2,64% Arion banki (IS) 3,06% Danske bank er því tuttugu og sex sinnum betri en Arion banki! Tuttugu og þrisvar sinnum betri en íslensku bankarnir að meðaltali! Á fótboltamáli þýðir það tuttugu og þrjú mörk gegn engu! Ef litið er til arðsemi eigin fjár er niðurstaðan eftirfarandi (Viðskiptablaðið 30. apr. 15): Danske bank 2,5% arðsemi eigin fjár Storebrand 5% Arbejdernes Landsbank 7,5% SkandiaBanken 9% Nordea Bank 11% Landsbankinn 12% Íslandsbanki 13% Arion banki 18%Leikur með lífskjör Alþingi Íslendinga er því miður ekki til stórræða í þessum grafalvarlega leik með lífskjör almennings. Fyrir þinginu hefur legið frumvarp þar sem gengist er inn á arðsemiskröfur íslensku bankanna undir kjörorðinu eiginfjárauki og er eins og tíundin gamla fjórskipt: eiginfjárauki vegna kerfisáhættu, kerfislegs mikilvægis, sveiflujöfnunarauki og verndunarauki! Gissurr bp Ísleifsson hefði þóst fullsæmdur af svo ágætu lagatækniorðabrelli sem enn eykur eigið fé bankanna og arðsemiskröfur í krónum og aurum langt umfram það sem talið er eðlilegt og sanngjarnt með þeim þjóðum sem við helst viljum bera okkur saman við.Af hverju? Spurt er: Af hverju hefur tekist að telja öllum trú um það að hollast sé að hverfa frá klassískri hugmyndafræði bankastarfsemi og taka upp í staðinn rekstrarmódel vogunarsjóða og hrægamma? Svar: Óhófleg arðsemisgræðgi, með höfuðáherslu á samfélagslegan heilaþvott sem leggur að jöfnu bankarekstur og annan fyrirtækjarekstur, sbr. viðtalið við bankastjóra Arion banka (Viðskiptamogginn 11. mars 15 á bls. 8-9) og blaðagrein Patricks Jensens af síðum Financial Times (Viðskiptamogginn 30. apr. 15 á bls. 11).Til hvers? Ef spurt er til hvers muni leiða vaxandi græðgi í hæstu arðsemi sem óhjákvæmilega hefur í för með sér vaxandi samþjöppun auðs, vaxandi misskiptingu og vaxandi samfélagsólgu, má vísa til ákalls plútókratans og óforbetranlega kapítalistans Nicks Hanauer, sem svo kynnir sig sjálfur. Ákall til allra annarra plútókrata, kapítalista og stjórnenda. En Nick líkir þessu vitlausa sálarlausa arðsemisgræðgiástandi við undanfara frönsku stjórnarbyltingarinnar og muni óhjákvæmilega enda með ósköpum. Ákallið einfalt og skilvirkt: Wake up!Íslensk arðsemisgræðgi Samanburðurinn á milli íslenskra og annarra norrænna banka um arðsemi eigna og eigin fjár sýnir að bankastjórnir íslenskra banka gera allt of háar arðsemiskröfur. Eigið fé bankanna er of hátt og sjálfvirk hækkun verðtryggðra eignasafna með sjálfvirkt auknu veðrými í mótsögn við góða bankavenju miðað við klassíska hugmyndafræði bankarekstrar. Bankastjórnir og bankastjórar íslenskra banka virðast alls ekki skilja hlutverk og tilgang alvöru bankastarfsemi, né heldur kjörnir fulltrúar með hug á að styðja áðurnefnt frumvarp, né heldur höfundur/höfundar skýrslunnar með stóra nafnið. Allt saman arfavond tíðindi fyrir land og þjóð. Heimilin og minni fyrirtækin verða þá áfram í þrældómi séríslensku hávaxtanna og einhliða (en kolólöglegra) verðtryggðra lánasamninga, þjónustugjöldum banka fjölgað og þau hækkuð, stýrivöxtum haldið í ofurhæðum, allt saman í mótsögn við bankarekstur í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.Arðsemisgræðgin verðlaunuð Fjármála- og efnahagsráðuneytið er því miður fast í öfugmælavísum fjármálaelítunnar því nú á að verðlauna ofurarðsemina af íslenskum bankarekstri með auknum bónusgreiðslum til bankamanna. Er von að spurt sé: Hvað kostar að flytja til Færeyja? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Reykjavík er að byrja á röngum enda Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir Skoðun Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir Skoðun Tvær flugur í einu höggi: Einkavætt og réttarríkið vængstíft! Ögmundur Jónasson Skoðun „Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar Skoðun Er ESB að grafa undan eigin hagsmunum? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landhelgisgæslan til taks - í heila öld Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun „Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson skrifar Skoðun Reykjavík er að byrja á röngum enda Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Tvær flugur í einu höggi: Einkavætt og réttarríkið vængstíft! Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Nokkur orð um samkennd Ari Allansson skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum, skýrsla HMS Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Réttur barna til tvítyngis: íslenskt táknmál og íslenska Júlía Guðný Hreinsdóttir skrifar Skoðun Öruggt ferðasumar hefst með góðum brunavörnum Methúsalem Hilmarsson skrifar Skoðun Hvernig lesum við skoðanagreinar? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Vatnaskil í markaðssetningu Íslands Pétur Þ. Óskarsson skrifar Skoðun Af hverju hunsa Samfylkingin og Vinstrið umboðsmann barna? Þórður Halldórsson skrifar Skoðun Dómar sem eru ekkert annað en „one way ticket“ á Litla-Hrauni Davíð Bergmann skrifar Skoðun Spyrjum við áfram nýrra spurninga? Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða áfengisgjaldið? Einar Bárðarson skrifar Skoðun Þegar dýravelferð víkur fyrir hagnaði Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir Skoðun
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar
Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar
Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar
Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar
Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir Skoðun