Hinn einstaki Gestur frá Hæli: Ósyndi sundkennarinn sem heilsar öllum Kjartan Atli Kjartansson skrifar 30. janúar 2015 16:24 Gestur frá Hæli er einstakur maður.
Þeir sem þekkja Gest frá Hæli eru flestir sammála um að þar er á ferðinni einstakur karakter. Hann var ósyndur sundkennari, talar bjagaða ensku og er með brenglað tímaskyn en kemur sínu alltaf til skila. Þetta kemur fram í skrifum vinar hans Þorsteins Hauks Harðarsonar, en Þorsteinn er ritstjóri Sport.is. Þeir félagarnir eru báðir staddir úti í Katar, þar sem þeir fjalla um heimsmeistaramót karla í handbolta.Gestur segist hafa ætlað að gefa frúnni þennan miða af gjöf. En hafi ruglast.Gestur er Einarsson er fjölmiðlarmaður. Hann heldur úti útvarpsþættinum á Útvarpi Suðurlands auk þess sem hann skrifar á vefsíðuna fimmeinn.is. Þorsteinn skrifaði magnaða stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sína þar sem hann tiltók nokkrar „sturlaðar staðreyndir“ um Gest: „Hann vann einu sinni sem sundkennari en gæti samt ekki synt til að bjarga lífi sínu. Hann er því líklega fyrsti ósyndi sundkennarinn í sögunni," segir hann og heldur áfram:„Hann sefur svo mikið að ég er búinn að leggja til að nafninu hans verði breytt í Gestur frá Bæli.Hann hefur EKKERT tímaskyn. Ef við eigum að vera mættir eitthvað klukkan 17:00, þá segi ég við hann að það sé mæting 15:30.. þá rétt mætir hann á réttum tíma.Maðurinn er vinur allra hérna úti og það tekur óratíma að ferðast um með honum þar sem hann þarf að stoppa og heilsa ÖLLUM.Hann er ótrúlega lengi að gera sig til. Í gær mæltum við okkur mót í hótelandyrinu og hann sagði "ég er að labba út um hurðina." ég skrifaði heila frétt áður en ég fór út en var samt kominn á undan honum,Gestur talar einstaklega bjagaða ensku og hefur komið með nokkur ansi góð gullkorn (I throw up when I dance og I want to go horsebackriding on an elephant)Hann er svo utan við sig að það er magnað að hann sé enn á lífi.. ég rétt náði að koma í veg fyrir að hann labbaði í veg fyrir pallbíl þegar við vorum á röltinu um daginn.Ég er örugglega að gleyma einhverju, maðurinn er ótrúlegur."Gestur minnir hér einstaklega mikið á körfuboltahetjuna Larry Bird. Gestur er mikill aðdáandi Boston Celtics, en þar lék Bird allan sinn feril. Hann segist hafa fengið sér þessa hárgreiðslu og mottuna í tilefni af Mottumars í fyrra. En hann gerði sér ekki grein fyrir hversu lengi permanentið myndi endast og var með krullur fram á vor.Í öllum athugasemdum við færsluna má sjá samróma álit þeirra sem þekkja Gest að þetta sé toppmaður. Móðir Gests, Hafdís frá Hæli tekur undir orð Þorsteins: „Bara eins og talað úr mínum munni. Þú hefðir átt að vera fluga á vegg þegar ég var að reyna að ala hann upp. Get bætt ýmsu við listann. Greinilegt að við getum gefið út heila bók um þennan dreng. Kveðja, Mamma Gests." Þegar blaðamaður Vísis náði sambandi við Gest frá Hæli úti í Katar sagðist honum þykja færsla Þorsteins frábær. Hann sagði þó farir sínar ekki sléttar, hrakfarir hans í tæknimálum eru nú orðnar að meti samkvæmt reyndustu íþróttafréttamönnum landsins: „Ég er nú búinn að bæta met á þessu móti, fór úr takkasíma yfir í snjallasíma sem bilaði, keypti notaða tölvu fyrir mót sem bilaði, keypti tölvu í fríhöfninni til að redda mér, „fjölskyldukameran“ bilaði svo endaði ég á að kaupa iPad-mini. Samkvæmt Ívari Benediktssyni og Arnari Björnssyni er þetta sennilega met í tæknimálum.“ Um Gest gengur vinsæl saga á Suðurlandi. Hann hafði þá skreytt húsið sitt bæjarhátíð og vandaði ekkert sérstaklega til verka, að sögn vina hans. Gestur vissi þetta, en lét þessar skreytingar duga, þó þær væru ekkert mikið fyrir augað. En hann vissi ekki að akkúrat þennan dag myndi bíll frá Google Maps kortleggja svæðið og festi skreytingar Gests á mynd, sem internetið um geyma um ókomna tíð.
Mest lesið Megas er látinn Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Harry Styles setti heimsmet Lífið Britney á stóra skjáinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira