Rýnir í ræturnar okkar í glænýjum þáttum Guðrún Ansnes skrifar 14. maí 2015 12:00 Kristján er yfir sig spenntur fyrir að leggjast í rannsóknarvinnu þáttanna, sem gætu orðið átta og jafnvel miklu fleiri. Vísir/Stefán „
Hér er svo mörgum spurningum ósvarað. Erum við öll Norðmenn? Kannski Írar? Hvaðan erum við eiginlega?“ spyr Kristján Már Unnarsson uppveðraður, en hann hyggst búa til þætti um landnám Íslands og þær fjölmörgu ráðgátur sem því fylgja. Mun hann leita á náðir sérfræðinga úr öllum áttum, svo sem sagnfræðinga, náttúrufræðinga, erfðafræðinga og fleiri. „Ég held að þetta sé eitthvað sem allir hafa áhuga á, við viljum jú öll vita hvaðan við komum og mér hefur sýnst fólk áhugasamt,“ segir Kristján. Hann segir áhugavert að velta fyrir sér hvernig standi á því að hingað hafi menn upphaflega komið og ef þeir hafi komið frá Noregi líkt og haldið er fram, hvers vegna þeir völdu Ísland. „Svo má alltaf velta fyrir sér ýmsu, svo sem hvað gerði það að verkum að Íslendingar náðu ekki bólfestu í Ameríku þrátt fyrir að hafa verið þar býsna snemma,“ segir Kristján. Kristján segir Íslendinga lukkunnar pamfíla þar sem forfeður okkar voru svo dæmalaust duglegir við að skjalfesta landnámið. „Við höfum verið hér síðan 870 og erum með þetta nánast allt saman skrifað niður, það er hreint út sagt ótrúlegt.“ „Ég stefni á að koma þessu í sýningu með haustinu, en lofa engu þar sem þetta er krefjandi verk og verður að vera almennilega gert, og svo verður þetta að vera sjónvarpsvænt líka,“ segir Kristján að lokum.
Mest lesið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Lífið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Lífið Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Lífið Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Lífið Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Lífið Fleiri fréttir Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Sjá meira