Þetta gátum við! Guðrún Högnadóttir skrifar 16. september 2015 12:00 Þegar miðlar heims nærast á slæmum fréttum og samtöl okkar sækja í hálftóma glasið kann okkur að finnast verkefni dagsins óyfirstíganleg. Hörmungarnar fyrir botni Miðjarðarhafs eru allt í einu orðnar daglegur hluti af evrópskum veruleika; vantrú fjöldans á íslensk stjórnmál birtist ítrekað í könnunum og kjörsókn; að ógleymdri biðinni endalausu eftir sumrinu sem sveik suma. Aftur. Hvernig eigum við að hafa áhrif á gang mála þegar verkefnin eru þetta yfirþyrmandi? Stöndum við vanmáttug frammi fyrir áskorunum dagsins? En höfum við virkilega þetta lítil áhrif? Hugsum aðeins til baka. Vissir þú að á aðeins 45 árum tókst heimsbyggðinni að lengja meðallífaldur úr 48 árum í 66 ár? Þetta tókst okkur með betri lífskjörum, framförum í heilbrigðisfræðum og öðrum lýðheilsufræðilegum verkefnum samkvæmt CDC. Vissir þú að á aðeins 25 árum tókst okkur að minnka ungbarnadauða um helming eða úr 91 í 41 barn sem deyr fyrir 5 ára afmælið sitt fyrir hver 1.000 sem fæðast. The World Bank metur það svo að við höfum bjargað lífi 48 milljóna barna um heim allan frá aldamótum m.a. með bættum sýkingavörnum, heilbrigðisþjónustu, næringu og aðgangi að hreinu vatni. Frá 1990 tókst okkur að lækka um helming tíðni alvarlegrar fátæktar. Fyrsta þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna er einmitt að enda birtingarmynd fátæktar alls staðar, enda lifir enn einn af hverjum fimm íbúum í þróunarlöndum af minna en 160 krónum daglega. Hér heima tókst okkur á nokkrum áratugum að útrýma berklum, draga verulega úr reykingum, minnka svo um munar fordóma gagnvart samkynhneigðum, virða betur framlag beggja kynja, efla menntun, rækta heimsklassa íþróttamenn og tónlistarmenn, færa okkur á methraða frá því að vera algjörlega háð náttúruauðlindum, og stíga öldur efnahags ólgusjós þannig að eftir er tekið. Hverju gætum við áorkað á næstu fimm árum? Með samstilltu átaki flytjum við fjöll. Og sem betur fer erum við alltaf með auga á næsta fjalli sem við þurfum að klífa saman: umhverfismálin, heimsfriður, útrýma fordómum, tryggja enn meiri jöfnuð og tækifæri fyrir alla. Lykilatriði í öllum framförum er að læra og upplýsa. Að halda fast í þá mynd af heimi sem við viljum búa í. Einsetjum okkur breytingar góðs. Við berum öll ábyrgð á góðum heimilum, góðum vinnustöðum, góðum heimi. Og mundu svo að sólin leynist í hjarta þínu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið X-R mun standa vörð um innviði og arðbærar eignir Reykvíkinga! Linda Jónsdóttir Skoðun Andstaðan við að tryggja að neytendur fái lækkun við dælu Þórður Snær Júlíusson Skoðun Kvíðakast einstæðingsins Sólveig Skaftadóttir Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun Áskrift í sund á verði Netflix Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason Skoðun Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson Skoðun Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson Skoðun Þegar við lærum að þóknast – og gleymum sjálfum okkur Kristín Magdalena Ágústsdóttir Skoðun Stöðu minnar vegna Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Viska stéttarfélag: Sameinuð og skynsöm rödd til framtíðar Sigrún Einarsdóttir skrifar Skoðun Fyrir enn betri Akureyrarbæ Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Áskrift í sund á verði Netflix Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Kvíðakast einstæðingsins Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Hvað ætlar Akureyri að verða þegar hún verður stór? Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Fjarðarheiðargöng og lenging flugbrautar á Egilsstöðum eru þjóðaröryggismál Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Andstaðan við að tryggja að neytendur fái lækkun við dælu Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hafnarfjörður í sókn með skýra sýn og hlýja forystu Alexander M Árnason skrifar Skoðun Þegar við lærum að þóknast – og gleymum sjálfum okkur Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson skrifar Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar Skoðun Þegar öldrun birtist okkur eins og hún er Berglind Indriðadóttir skrifar Skoðun Klárum verkin fyrir börnin og íþróttafólkið okkar Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar Skoðun Ég skildi ekki Íslendinga fyrst Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Stöðu minnar vegna Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Enn eitt neyðarkall Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Dúllur okkar daga Hallgrímur Helgason skrifar Skoðun Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir,Tómas Joensen,Pia Hansson skrifar Skoðun Jarðgangnaáætlun - staðfesta eða stefnuleysi Sigurður Ragnarsson skrifar Skoðun „Þetta reddast“ og strategísk sýn á alþjóðamál Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar Skoðun Vika6 – Vilt þú læra að stunda gott kynlíf? Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson skrifar Skoðun Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hafnarfjörður er að verða fullbyggður – hvað gerum við nú? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Hafnfirskur evrópuvöllur? Já takk! Árni Stefán Guðjónsson skrifar Skoðun Áminningarskyldan og þjónusta hins opinbera Kristján Páll Kolka Leifsson skrifar Skoðun 36 stunda vinnuvika, leikskólar og komandi kjarasamningar Guðmundur D. Haraldsson skrifar Skoðun Fyrir fólkið Jónas Þór Birgisson skrifar Sjá meira
Þegar miðlar heims nærast á slæmum fréttum og samtöl okkar sækja í hálftóma glasið kann okkur að finnast verkefni dagsins óyfirstíganleg. Hörmungarnar fyrir botni Miðjarðarhafs eru allt í einu orðnar daglegur hluti af evrópskum veruleika; vantrú fjöldans á íslensk stjórnmál birtist ítrekað í könnunum og kjörsókn; að ógleymdri biðinni endalausu eftir sumrinu sem sveik suma. Aftur. Hvernig eigum við að hafa áhrif á gang mála þegar verkefnin eru þetta yfirþyrmandi? Stöndum við vanmáttug frammi fyrir áskorunum dagsins? En höfum við virkilega þetta lítil áhrif? Hugsum aðeins til baka. Vissir þú að á aðeins 45 árum tókst heimsbyggðinni að lengja meðallífaldur úr 48 árum í 66 ár? Þetta tókst okkur með betri lífskjörum, framförum í heilbrigðisfræðum og öðrum lýðheilsufræðilegum verkefnum samkvæmt CDC. Vissir þú að á aðeins 25 árum tókst okkur að minnka ungbarnadauða um helming eða úr 91 í 41 barn sem deyr fyrir 5 ára afmælið sitt fyrir hver 1.000 sem fæðast. The World Bank metur það svo að við höfum bjargað lífi 48 milljóna barna um heim allan frá aldamótum m.a. með bættum sýkingavörnum, heilbrigðisþjónustu, næringu og aðgangi að hreinu vatni. Frá 1990 tókst okkur að lækka um helming tíðni alvarlegrar fátæktar. Fyrsta þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna er einmitt að enda birtingarmynd fátæktar alls staðar, enda lifir enn einn af hverjum fimm íbúum í þróunarlöndum af minna en 160 krónum daglega. Hér heima tókst okkur á nokkrum áratugum að útrýma berklum, draga verulega úr reykingum, minnka svo um munar fordóma gagnvart samkynhneigðum, virða betur framlag beggja kynja, efla menntun, rækta heimsklassa íþróttamenn og tónlistarmenn, færa okkur á methraða frá því að vera algjörlega háð náttúruauðlindum, og stíga öldur efnahags ólgusjós þannig að eftir er tekið. Hverju gætum við áorkað á næstu fimm árum? Með samstilltu átaki flytjum við fjöll. Og sem betur fer erum við alltaf með auga á næsta fjalli sem við þurfum að klífa saman: umhverfismálin, heimsfriður, útrýma fordómum, tryggja enn meiri jöfnuð og tækifæri fyrir alla. Lykilatriði í öllum framförum er að læra og upplýsa. Að halda fast í þá mynd af heimi sem við viljum búa í. Einsetjum okkur breytingar góðs. Við berum öll ábyrgð á góðum heimilum, góðum vinnustöðum, góðum heimi. Og mundu svo að sólin leynist í hjarta þínu.
Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson Skoðun
Skoðun Fjarðarheiðargöng og lenging flugbrautar á Egilsstöðum eru þjóðaröryggismál Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson skrifar
Skoðun Íslenskt mállíkan – fullveldi eða útvistunarsamningur? Jón Guðnason,Hrafn Loftsson,Stefán Ólafsson,Kristinn R. Þórisson,Hannes Högni Vilhjálmsson,Henning Arnór Úlfarsson skrifar
Skoðun Hver borgar fyrir auknar strandveiðar? Björk Ingvarsdóttir,Mikael Rafn L. Steingrímsson skrifar
Skoðun Staða Íslands í alþjóðakerfinu: Mikilvægi upplýstrar umræðu Auður Birna Stefánsdóttir,Tómas Joensen,Pia Hansson skrifar
Skoðun Uxahryggir og Kaldidalur – lykill að öflugri Borgarbyggð og betri ferðaþjónustu á Íslandi Sigurður Guðmundsson skrifar
Skoðun Að endurskilgreina velgengni: Frá auði og völdum til tengsla og velsældar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar
Ísland í klóm myglunnar – Kerfisbundið lögleysi og stjórnsýslulegt gáleysi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir,Davíð Arnar Stefánsson Skoðun