Getur tekið upp í mánuð að ná sekúndunni Gunnar Leó Pálsson skrifar 7. ágúst 2015 08:00 Garpur Ingason Elísabetarson hefur unnið við smíði tæknibrella í þremur stórum kvikmyndum á undanförnum mánuðum. vísir/vilhelm „
Þetta var rosaleg vinnutörn, ég var að vinna í 80 tíma á viku í gluggalausu herbergi,“ segir Garpur Ingason Elísabetarson kvikmyndagerðarmaður en hann vann við eftirvinnslu kvikmyndarinnar Fantastic Four sem frumsýnd var hér á landi fyrir skömmu. Þeir sem þekkja Fantastic Four-myndirnar, sem eru nú orðnar þrjár talsins, vita að talsvert er um tæknibrellur í myndinni og vann Garpur við að smíða slíkar brellur. „Þeir fengu mig og fleiri aðila út til Montreal til að aðstoða sig við lokasenuna í myndinni. Við vorum rúmlega sextíu aðilar þarna að vinna að lokasenunni,“ segir Garpur sem var úti í tæpan mánuð að vinna. Hann hefur komið víða við í kvikmyndaiðnaðinum og hefur þessa dagana einnig unnið við eftirvinnslu myndarinnar Everest, sem Baltasar Kormákur leikstýrir og þá lauk hann nýverið við tæknibrelluvinnslu í Disney-myndinni The Finest Hours sem kemur út á næsta ári. Eftir að hafa stundað nám við Kvikmyndaskóla Íslands lá leiðin til Vancouver í Kanada þar sem hann stundaði nám við Lost Boys | School of VFX. „Ég vinn heima sem klippari aðallega en fór að læra tölvubrellur í Vancouver. Þessi skóli er vel tengdur bransanum og býður meðal annars upp á starfsnám og maður fær oftast vinnu í kjölfarið,“ segir Garpur sem bjó í eitt og hálft ár í Kanada.Kvikmyndin var frumsýnd hér á landi fyrir skömmu og þykir tæknilega töff.Hann segir kvikmyndabransann talsvert öðruvísi erlendis en hér á landi. „Það er allt miklu stærra í sniðum þarna úti og miklu meiri peningar til. Íslenski kvikmyndaiðnaðurinn er þó á mikilli uppleið, við eigum mikið af hæfileikaríku fólki og framfarirnar hafa verið miklar.“ Vinnan við tæknibrellugerð í kvikmyndum sem þessum getur tekið óratíma og segir Garpur fólk oft ekki gera sér grein fyrir hvað sé ekta og hvað séu tæknibrellur. „Það er ótrúlegt hvað það er hægt að gera mikið í eftirvinnslu í dag og oft eru þetta hlutir sem fólk pælir ekki í að séu búnir til, eins og t.d. tígrisdýrið í Life of Pi. Svo eru líka minni hlutir og ósýnilegir sem við tökum ekki eftir, taka út hluti sem mega ekki vera í ramma, svo sem skíðalyftur eða bæta inn fólki eða byggingum. Ég held að ég eigi allt í allt átta sekúndur í myndinni, sem sýnir hversu mikil og löng vinna þetta er. Ég vann í Disney-myndinni í þrjá mánuði og á 7 sekúndur í henni. Það getur tekið frá einni viku upp í mánuð að ná sekúndunni. Flóknustu skotin geta tekið margar vikur,“ útskýrir Garpur.
Mest lesið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið „Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Tónlist Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Lífið Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur Lífið „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Lífið Patrick Muldoon er látinn Bíó og sjónvarp Ari Edwald selur í Garðabænum Lífið Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Lífið samstarf Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Lífið „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Lífið Fleiri fréttir Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Sjá meira