Íslenskur bjöllukór spilar í Carnegie Hall Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 22. júní 2015 10:00 Bjöllukórinn samastendur af ellefu hressum bjölluleikurum. „
Hann spurði hvort við hefðum tíma og áhuga á því að vera með í Carnegie Hall og við vorum bara, já! Æði!,“ segir Karen Sturlaugsson, stjórnandi Bjöllukórs Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, skellihlæjandi. Kórinn heldur á fimmtudaginn til Bandaríkjanna þar sem hann tekur þátt í stóru bjöllukóramóti, Handbell Musicians of America, en þátttakendur á mótinu eru um 700 talsins. Það sem meira er þá hefur bjöllukórnum verið boðið að taka þátt í tónleikum sem fara fram í Carnegie Hall en tónleikarnir eru á vegum Yale University og flutt verður frumsamið verk eftir Julian Revie. „Við vorum til dæmis að æfa með honum í gegnum Skype um daginn, þetta er í annað skipti sem hann „mætir“ á æfingu hjá okkur. Búið að vera alveg ævintýri líkast,“ segir hún alsæl. „Þetta er bara alveg ótrúlegt ævintýri sem við höfum lent í. Ég fór að skoða möguleikana á því fyrir okkur að fara í tónleikaferð eða eitthvað og þá sá ég þetta stóra bjöllumót sem er í Massachusetts í næstu viku og við erum að fara þangað. Yale-háskóli heyrir að ég er að koma með heilan bjöllukór á þetta mót og það er haft samband við mig af því að tónskáldið vantar bjöllukór til þess að spila í frumsömdu verki í Carnegie Hall,“ segir Karen alsæl en auk stjórnanda eru ellefu bjölluleikarar í kórnum. Karen stofnaði kórinn fyrir þremur árum en sjálf hefur hún leikið á og haft áhuga á bjöllum um langt skeið og stofnaði í fyrsta sinn bjöllukór á Íslandi fyrir rúmum fjörutíu árum. „Ég kom til Íslands árið 1976 til þess að fara í háskóla og þá var ég búin að vera í svona bjöllustarfi úti í Ameríku. Pabbi minn átti bjöllusett og ég spurði hann hvort ég mætti fara með það til Íslands og stofnaði í kjölfarið bjöllukór,“ segir Karen en hún er fædd í Bandaríkjunum en afi hennar og amma fluttu frá Íslandi til Bandaríkjanna í kringum 1920. „Ég hef alltaf verið mikið í þessu, mér finnst bara svo athyglisverðir þessir bjöllukórar. Þetta er alveg svaka samstarf að láta þetta hljóma sem eina heild,“ segir hún glöð í bragði en eftir bestu vitund Karenar er Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar eini bjöllukórinn sem starfræktur er á Íslandi í dag og heldur reglulega tónleika. Kórinn efnir til styrktartónleika í Hljómahöll í Reykjanesbæ í kvöld klukkan átta og á morgun í Háteigskirkju, einnig klukkan átta.
Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Fleiri fréttir Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Sjá meira