Kúabú á krossgötum Guðjón Þórir Sigfússon skrifar 5. ágúst 2015 07:00 Hækkun á mjólkurverði Undanfarnar vikur hefur verið til umræðu hækkun á mjólk til framleiðanda. Hækkun er 1,77% frá 1. ágúst 2015, en síðasta hækkun var í október 2013. Þessi litla hækkun kom mörgum mjólkurframleiðendum verulega á óvart.Framleiðendur taka á sig hallann Verðlagsnefnd búvara ákvarðar hækkun á mjólk til framleiðanda. Nefndin miðar við kostnað út frá grundvallarkúabúi sem er með 40 árskýr, en búið er rekið með verulegum halla árið 2014 eða yfir 8 m.kr. Hækkun leiðréttir ekki hallarekstur á grundvallarbúi. Hluta af þessum halla hafa framleiðendur þegar tekið á sig með hagræðingu. Nefndin tekur ekki tillit til lækkunar á beingreiðslum á lítra sem orðið hefur á samningstíma gildandi mjólkursamnings frá 2004.Beingreiðslur hafa rýrnað Samningur um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu var undirritaður 2004 og gildir út 2016. Samkvæmt honum eru ákvæði um beingreiðslur fyrir mjólkurafurðir til greiðslumarkshafa mjólkur. Ef litið er til þróunar beingreiðslna á lítra mjólkur til framleiðanda frá árinu 2004, hafa þær rýrnað um 20 kr. á lítra fram til 2014 á föstu verðlagi. Þessar upplýsingar koma meðal annars fram í Bændablaðinu frá 9. júlí 2015: „Mjólkursamningurinn frá 2005 hefur elst illa“, er byggir á BS-ritgerð Ástu Steinunnar Eiríksdóttur hagfræðings.Tekjutap mjólkurframleiðenda verður að bæta Samkvæmt lögum um verðlagsnefnd er tekið fram að telja eigi beingreiðslur til tekna og koma til lækkunar á verði þeirra afurða sem beinar greiðslur taka til. Ekkert mælir því á móti því að verðlagsnefnd taki tillit til lækkunar á beingreiðslum inn í útreikning sinn á sama hátt, þannig að lækkun þeirra á lítra komi inn til hækkunar á verði til framleiðanda mjólkur. Þetta tekjutap mjólkurframleiðanda verður að bæta upp annars staðar. Ef ekki gegnum auknar niðurgreiðslur á framleiðslukostnaði þá með hækkun á verði til framleiðanda frá verðlagsnefnd. Það stjórnvald sem setur ramma utan um starfsemi verðlagsnefndar verður að tryggja að tekjutap fáist bætt gegnum verðlagsnefnd, önnur leið virðist ekki í boði.Verður að gera breytingar á verðlagningu mjólkur Það er ljóst að ekki gengur til lengdar að reka kúabú, eins og grundvallarbú verðlagsnefndar, með verulegu tapi eins og raunin er. Það verður að gera breytingar á verðlagningu mjólkur og starfsskilyrðum framleiðslu. Mjólkurframleiðendur ásamt mjólkurvinnslu hafa sýnt mikla hagræðingu á undanförnum árum. Það eitt og sér nægir ekki. Það verður að tryggja rekstur kúabúa í landinu á farsælan hátt þannig að þessi grein geti þrifist eðlilega. Á meðan verðlagning er í gegnum verðlagsnefnd verður að gera þá kröfu til hennar og þess lagaramma sem henni er settur að mjólkurframleiðsla búi við eðlilegan rekstrargrundvöll. Þá verður einnig að hafa í huga hinn mjög svo óeðlilega háa fjármagnskostnað sem mjólkurframleiðendur búa við eins og aðrar atvinnugreinar í landinu.Framtíð mjólkurframleiðslunnar Þjóð verður að geta nýtt eigin gæði til framleiðslu mjólkurvara þannig að rekstur búa gangi upp. Það er ekki ásættanlegt fyrir þjóð að vera háð innflutningi á þessum vörum og greiða fyrir þær með verðmætum gjaldeyri. Einnig koma upp í huga þættir eins og að halda uppi atvinnu, hreinleiki íslenskrar matvöru, sterk ímynd hennar fyrir hreinleika og að hafa dreifða byggð í landinu. Einnig ber að nefna mikilvægi þess að hægt verði að neyta matvöru úr sínu nærumhverfi, sem er að öllu jöfnu besta matvaran, en ekki matvöru sem hefur verið framleidd langt frá neytanda með stóru kolefnisspori vegna flutninga. Ekki er ósennilegt að í náinni framtíð verði mun meiri áhersla lögð á kolefnisspor matvæla, þannig að flutningar matvöru verði skattlagðir til að sporna við mengun vegna kolefnis. Neytendur eru orðnir sem betur fer mun meðvitaðri um þessa þætti. Reynsla erlendis sýnir að ef landbúnaðarframleiðsla eins og mjólk víkur af markaði í framleiðslulandi hækkar verð matvöru aftur. Þetta gerist eftir að innlend matvara hefur orðið undir í samkeppni við innflutning og verð á matvöru verður á endanum hærra en það var fyrir, áður en samkeppni kom til.Hagsmunir framleiðenda, neytenda og þjóðar fara saman Það á að vera skýrt að hagsmunir mjólkurframleiðenda, neytenda og þjóðar fari saman. Tryggja verður að neytendur geti hér eftir sem hingað til átt kost á innlendum mjólkurvörum af sem mestum gæðum. Þær verði framleiddar á sem hagkvæmastan hátt þar sem velferð dýra er samkvæmt því sem best gerist og framleiðsla eins sjálfbær með tilliti til innlendra hráefna og landsgæða og kostur er. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Reykjavík er að byrja á röngum enda Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson Skoðun Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Tvær flugur í einu höggi: Einkavætt og réttarríkið vængstíft! Ögmundur Jónasson Skoðun „Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir Skoðun Bruninn á Stuðlum, skýrsla HMS Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir Skoðun Réttur barna til tvítyngis: íslenskt táknmál og íslenska Júlía Guðný Hreinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Skoðun Nágranninn Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar Skoðun Er ESB að grafa undan eigin hagsmunum? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landhelgisgæslan til taks - í heila öld Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þegar ,,ríkið” yfirgaf byggðina Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Húsnæðispakkinn Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Meira íslenskt grænmeti er velferðarmál Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun „Biðlisti“ Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun Meira afl fyrir orkuna Gunnar Guðni Tómasson skrifar Skoðun Reykjavík er að byrja á röngum enda Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Tvær flugur í einu höggi: Einkavætt og réttarríkið vængstíft! Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Nokkur orð um samkennd Ari Allansson skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum, skýrsla HMS Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Réttur barna til tvítyngis: íslenskt táknmál og íslenska Júlía Guðný Hreinsdóttir skrifar Skoðun Öruggt ferðasumar hefst með góðum brunavörnum Methúsalem Hilmarsson skrifar Skoðun Hvernig lesum við skoðanagreinar? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Vatnaskil í markaðssetningu Íslands Pétur Þ. Óskarsson skrifar Skoðun Af hverju hunsa Samfylkingin og Vinstrið umboðsmann barna? Þórður Halldórsson skrifar Skoðun Dómar sem eru ekkert annað en „one way ticket“ á Litla-Hrauni Davíð Bergmann skrifar Skoðun Spyrjum við áfram nýrra spurninga? Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða áfengisgjaldið? Einar Bárðarson skrifar Skoðun Þegar dýravelferð víkur fyrir hagnaði Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hver vill borða brauðið? Jón Óskar Hinriksson skrifar Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson skrifar Sjá meira
Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir Skoðun
Skoðun Virðing fyrir menntun leikskólakennara er virðing fyrir börnum Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir,Sara Margrét Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir skrifar
Skoðun Lýðræðisveislan í ágúst - Upplýsingar, fullveldi og framtíðarsýn fullvalda þjóðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hanna Katrín Friðriksson og hvalveiðar — Frelsi eða forræðishyggja? Hjörvar Sigurðsson skrifar
Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar
Varðskipið Þór: Frá samtakamætti til upphafs Landhelgisgæslu Íslands Íris Róbertsdóttir Skoðun