Áfall fyrir bæði Guðmund og Alfreð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. desember 2015 09:45 René Toft Hansen í leik á móti Íslandi á æfingamótinu á dögunum. Vísir/Getty
René Toft Hansen, lykilmaður Kiel og danska landsliðsins, meiddist á hné í leik Kiel og Bergischer í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta og óttast er að meiðslin séu alvarleg. René Toft Hansen var borinn af velli og Kiel skrifar á heimasíðu sinni að menn þar á bæ búa sig undir það að fá slæmar fréttir. „Við erum í sjokki. Fyrirliðinn okkar, René Toft Hansen, gæti verið alvarlega meiddur á hné. Við krossum fingur og vonum það að hann geti spilað aftur sem fyrst. Góðan bata," skrifaði Kiel á heimasíðu sinni. Þetta væri mikið áfall fyrir bæði Alfreð Gíslason, þjálfara Kiel og Guðmund Guðmundsson, þjálfara danska landsliðsins. Alfreð hefur verið afar óheppinn með meiðsli sinna manna á þessu tímabili en Patrick Wiencek, Dominik Klein, Joan Canellas og Rune Dahmke eru allir meiddir. Eftir meiðsli René Toft Hansen í gær kallaði Alfreð enn á ný eftir því að leyfa fleiri leikmenn á skýrslu svo hægt sé að dreifa álaginu betur. Alfreð vill sjá sextán manna leikmannahópa í leikjunum. Kiel minnkaði forskot Rhein-Neckar Löwen í tvö stig með þessum sigri í gær en næsti leikur þýsku liðanna er ekki fyrr en eftir Evrópumótið í Póllandi. René Toft Hansen er algjör lykilmaður í vörn danska landsliðsins og liðið þarf á honum að halda á Evrópumótinu í Póllandi í næsta mánuði í baráttunni um Evrópumeistaratitilinn.
Handbolti Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Fótbolti Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Fótbolti Með Haaland á toppi vinsældalistans Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira