Rene Toft Hansen sleit krossband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. desember 2015 13:46 Rene Toft Hansen reynir hér að stoppa Aron Pálmarsson í landsleik. Vísir/Getty
Rene Toft Hansen, fyrirliði Kiel og lykilmaður danska handboltalandsliðsins, verður ekki með Dönum á Evrópumótinu í Póllandi. Kiel staðfestir á heimasíðu sinni að leikmaðurinn sé með slitið krossband. Rene Toft Hansen meiddist á hægra hné í sigri Kiel á Bergischer HC í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta og menn óttuðust strax hið versta sem varð síðan raunin. Hansen sleit fremra krossband auk þess að slíta miðlægt liðband í hægra hnénu. Rene Toft Hansen mun líklega vera frá í átta mánuði og spilar því ekki meira á þessu tímabili.Dr. Frank Pries mun framkvæma aðgerðina á hægra hné Rene Toft Hansen en hún mun fara fram strax á morgun þriðjudag.Þetta er mikið áfall fyrir bæði Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel og Guðmund Guðmundsson, þjálfara danska landsliðsins enda Rene Toft Hansen lykilmaður hjá báðum liðum. Thorsten Storm, framkvæmdastjóri Kiel, var allt annað en sáttur í viðtali á heimasíðu Kiel en margir leikmenn Kiel hafa meiðst á þessu tímabili og varnartröllið Patrick Wiencek sleit einnig krossband. Öflugir leikmenn eins og Niklas Landin, Rune Dahmke, Domagoj Duvnjak og Joan Canellas hafa einnig verið að glíma við meiðsli. Storm nefnir það að álagið sé að gera útaf við bestu liðin en Kiel lék þarna sinn 35. keppnisleik á þessu tímabili. Patrick Wiencek og Rene Toft Hansen eru tveir aðalvarnarmenn Kiel og báðir spila einnig fyrir íslenska þjálfara með landsliðum sínum. Það gæti orðið erfitt fyrir Kiel að vinna þýska titilinn án þessara öflugu leikmanna.
Handbolti Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Sjá meira