Íslendingaliðið sem vinnur bara á útivelli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2015 20:26 Tandri Már Konráðsson. Vísir/Ernir
Íslendingaliðið Ricoh vann eins marks útisigur á Redbergslids IK, 28-27, í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Þetta var annar útisigur Ricoh í röð og sjá þriðji í síðustu fjórum útileikjum en þetta eru einu sigrar liðsins í fyrstu fjórtán umferðunum. Íslenski landsliðsmaðurinn Tandri Már Konráðsson var með fjögur mörk og fjórar stoðsendingar í leiknum en hann skoraði tvö mikilvæg mörk á lokakafla leiksins. Magnús Óli Magnússon skoraði eitt mark úr fimm skotum og átti einnig eina stoðsendingu. Redbergslid komst í 2-0 og 3-1 í upphafi leiks og var 7-5 yfir eftir tíu mínútna leik. Ricoh skoraði þá fjögur mörk í röð og komst yfir í 9-7. Magnús Óli skoraði eitt af þessum fjórum mörkum. Redbergslid náði aftur frumkvæðinu, komst í 13-10 og var síðan 14-13 yfir í hálfleik. Redbergslid var 18-15 yfir þegar rúmar sex mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum en þá kom frábær kafli hjá Ricoh-liðinu sem skoraði aftur fjögur mörk í röð og komst í 19-18. Ricoh byggði ofan á þennan frábæra kafla og var 24-20 yfir þegar tólf mínútur voru eftir af leiknum. Leikmenn Redbergslid unnu muninn upp á lokakaflanum en Ricoh-liðið hélt út og tryggði sér sigurinn. Það skipti miklu máli að Tandri Már skoraði tvö marka sinna á lokakafla leiksins. Ricoh fór upp úr fallsæti með þessum góða sigri en liðið er nú tíunda sæti deildarinnar eða í næsta sæti á eftir Eskilstuna Guif.
Handbolti Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Sjá meira