„Erum með tveggja metra durga sem Haukar eru ekki vanir að glíma við“ Stefán Árni Pálsson skrifar 21. nóvember 2015 15:20 Arnór Atlason mætir á Ásvelli á morgun. vísir „
Við eigum bara von á þrælerfiðum leik gegn Haukum,“ segir Arnór Atlason í samtali við Guðjón Guðmundsson á Ásvöllum í dag. Arnór leikur með franska liðinu Saint-Raphaël, sem mætir Haukum í þriðju umferð EHF-keppninnar í handknattleik á morgun. Liðið er í öðru sæti frönsku úrvalsdeildarinnar sem stendur. „Við erum bara nokkuð ungur klúbbur og þannig séð ekki mikil reynsla í Evrópu-keppni hjá okkur, ekkert í líkingu við þá reynslu sem Haukar hafa í keppni sem þessari. Markmið okkar er vissulega að komast í riðlakeppnina.“Hafa undirbúið sig vel Arnór segir að liðið hafi undirbúið sig vel og skoða andstæðinginn. „Við eigum eftir að fara betur yfir þetta en teljum okkur nokkuð vel undirbúna. Fyrirfram erum við að sjálfsögðu sigurstranglegri, og þá sérstaklega útaf stærð leikmanna liðsins. Við erum með margar tveggja metra durga sem Haukar eru ekki vanir að glíma við.“ Arnóri hefur gengið vel með liðinu að undanförnu. „Ég hef náð að spila mikið og vonandi heldur það áfram fram í janúar,“ segir Arnór sem verður ekkert endilega áfram hjá Saint-Raphaël. „Ég hef ekki fundið mér annan klúbb og það er ekkert útilokað í þessu. Ég hef engar áhyggjur samt, ég finn eitthvað.“Verður rosalega erfitt Haukar hafa farið á kostum í Olíd-deild karla á tímabilinu og er liðið í efsta sæti deildarinnar. „Þetta verður rosalega erfitt, enda eru þeir með hörkulið,“ segir Heimir Óli Heimisson, leikmaður Hauka. „Við förum engu að síður bjartsýnir inn í þetta og stefnum á sigur. Við höfum verið að spila fantavörn í deildinni hérna heima en við vitum að við þurfum aðeins að breyta vörninni okkar til að verjast gegn þeim. Þetta eru stærri skyttur og stærri menn.“ „Þarna ertu kominn í annan þyngdarflokk, annan gæðaflokk og allt menn sem hafa margra ára reynslu að baki,“ segir Janus Daði Smárason, leikmaður Hauka. „Við mætum samt kokhraustir til leiks og ætlum okkur sigur. Við þurfum bara að hafa virkilega fyrir þessu og breyta áherslum hér og þar.“
Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Fleiri fréttir FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Baldur Fritz markahæstur í sigri Kristianstad Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór Sjá meira