Er kölluð Hallgerður en heiti Gló Magnaða Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 15. nóvember 2015 10:30 Hallgerður á nokkra uppáhaldsstaði, einn þeirra er Grænaborg. Þessi mynd er tekin nálægt honum. Fréttablaðið/GVA
Hvað heitir þú fullu nafni og hvað ertu gömul? Ég er kölluð Hallgerður Hafþórsdóttir en ég heiti Gló Magnaða og ég er fimm ára. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að leika í varúlfaleik og búa til marglit bönd, það heitir að loom-banda. Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn? Leikskólinn minn, Grænaborg, og Flatey og líka Berlín því ég er að fara þangað og það er í fyrsta skipti sem ég fer til útlanda. Hvað er mest gaman að gera í Flatey? Að klappa Diego lambhrútnum mínum, að sulla í sandkassanum með Áróru og Sóldísi, skvetta vatni og vera alls konar búð. Ég er oft dugleg að leika mér og ef vinkonur mínar eru ekki í Flatey fer ég bara til ömmu, hún á heima þar. Ertu stundum að hjálpa til við sveitastörfin? Jebb. Ég smala kindum, gef þeim og rek þær inn í girðingu. Svo hjálpa ég afa að sækja kartöflur og svo setjum við þær í pott og borðum þær. Ég er líka dugleg að hjálpa ömmu að baka pönnsur og hjálpa Hrönn með Lúkas og Kára - þeir eru hundar. Hvað er það ævintýralegasta sem þú hefur gert í sveitinni? Einu sinni þegar ég fór á traktorinn hans Magnúsar og fór í heimsókn til hans, þar fæ ég alltaf kakó og að klappa Vaski. Hefurðu farið á sjóinn að fiska? Jebb. Ég fer oftast með pabba, stundum með öllum hinum. Við erum að veiða þorsk, ég hef sko veitt nokkra og líka makríl. Einu sinni fékk pabbi lifandi sel í netið sitt og ég fékk að klappa honum áður en hann fór aftur í sjóinn. Ertu aldrei sjóveik? Nei, nei.
Menning Mest lesið Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Urður yfirgefur Kastljós Lífið Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Menning Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Lífið Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Lífið Ben Jones er látinn Bíó og sjónvarp Aubrey Plaza orðin mamma Lífið Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Lífið „Svolítið eins og að vera á annarri plánetu“ Ferðalög Ódysseifur halað inn milljarði dala og Lói nálgast tvo Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Sjá meira